Þegar Kristín María Birgisdóttir missti vinnuna sem markaðs- og upplýsingafulltrúi hjá Grindavíkurbæ í lok apríl ákvað hún að stofna ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur það að markmiði að segja sögu hamfaranna í Grindavík.

Fyrirtækið Discover Grindavík hefur þegar tekið til starfa í bænum. Þar mun hún taka á móti ferðamönnum og segja þeim frá sögu náttúruhamfaranna í Grindavík og ekki síst sögu fólksins í Grindavík og hvaða áhrif hamfarirnar hafa haft á sálarlíf Grindvíkinga.
„Sem markaðs- og upplýsingafulltrúi er ég búin að vera segja söguna frá því að rýmingin var í bænum. Síðan missi ég vinnuna í lok apríl. Það gengur illa og erfiðlega fyrir sveitarfélag eins og Grindavíkurbæ með litla útfærslu að gera að halda eðlilegri starfsemi gangandi. Ég er ekki að leggja árar í bát heldur trúi því að sókn sé besta vörnin,“ segir Kristín spurð hvað komi til að hún ákveði að opna fyrirtækið á þessum tíma.
Hún segir að hún finni strax fyrir áhuga frá fólki sem vill hitta einhvern frá Grindavík til að segja sögu bæjarins en Kristín er fædd og uppalin í Grindavík og hefur starfað stóran hluta starfsævi sinnar í bænum.
„Mér finnst mikilvægt að fólk fái innsýn í það að þetta séu ekki aðeins hamfarir sem eru sjáanlegar á jörðinni heldur hefur líka haft mikil áhrif sálarlíf fólks,“ segir Kristín.
„Það er heilt samfélag þarna á bak við sem þessar náttúruhamfarir höfðu áhrif á. Það er í raun saga að segja frá því,“ segir Kristín.
Spurð hvers kyns þjónustu fyrirtækið muni bjóða upp á segir Kristín að áherslan verði á einkaupplifun þar sem boðið verði upp á kynningu um bæinn og sögu hans með leiðsögn í gegnum bæinn. Þá hefur hún einnig boðið upp á kynningu á veitingastöðum bæjarins.
Aðspurð segir hún að það séu erlendir ferðamenn sem séu hve duglegastir að heimsækja Grindavík. Biðlar hún þó einnig til Íslendinga að gera sér ferð í bæinn í sumar og styðja við þau fyrirtæki sem hafa opnað á ný.
„Tækifærið til að heimsækja Grindavík er núna í sumar. Það eru fyrirtæki sem eru að koma sér upp á lappirnar og reyna að lifa af,“ segir Kristín
Discover Grindavík hefur þegar tekið til starfa en opnunarhóf fyrirtækisins fer fram næstkomandi miðvikudag í Kvikunni, menningarhúsi Grindavíkur.