Þrjú úkraínsk börn á aldrinum átta til sautján ára létust í stórfelldum eldflauga- og drónaárásum Rússa í héraðinu Zhotomyr nótt. Tíu til viðbótar særðust í árásum á héraðið.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hvatti í morgun þjóðarleiðtoga Evrópu og Bandaríkjanna til að auka þrýsting á Rússa um vopnahlé. Öðruvísi yrði stríðið ekki stöðvað.
Samkvæmt færslu frá úkraínska flughernum á Telegram létust alls tólf manns í áráum Rússa í nótt, en herinn segist hafa skotið niður 45 rússneskar eldflaugar og 266 árásardróna.
Er þetta önnur nóttin í röð þar sem Rússar gera stórfelldar árásir á Úkraínu og í nótt urðu flest landsvæði fyrir barðinu á þeim.
Í færslu á samfélagsmiðlum í morgun kallaði Selenskí eftir frekari stuðningi Evrópu og Bandaríkjanna.
„Þessi grimmd verður ekki stöðvuð án alvöru þrýstings á stjórnvöld í Rússlandi. Refsiaðgerðir munu svo sannarlega hjálpa,“ skrifaði Úkraínuforseti.
Hvatti hann jafnframt Bandaríkin, ríki Evrópu og alla þá sem leitast eftir að koma á friði til að sýna festu og þvinga Rússa til að stöðva stríðið.