Minnst 52 létust í loftárásum Ísraelshers á Gasa í morgun og tugir til viðbótar særðust, að sögn viðbragðsaðila á Gasa.
Minnst 52 létust í loftárásum Ísraelshers á Gasa í morgun og tugir til viðbótar særðust, að sögn viðbragðsaðila á Gasa.
Minnst 52 létust í loftárásum Ísraelshers á Gasa í morgun og tugir til viðbótar særðust, að sögn viðbragðsaðila á Gasa.
33 fórust þar sem þau höfðu leitað skjóls í skólabyggingu sem hýsti flóttamenn. Þá fórust nítján í loftárás í Jabalia á norðanverðri Gasaströndinni, að sögn Mahmud Bassal, forsvarsmanni almannavarna á Gasa.
Á meðan árásirnar stóðu yfir kynntu sáttasemjarar fyrir Ísrael og Hamas tillögu að 70 daga vopnahléi og samning til frelsunar gíslum.
Ísrael hefur á ný tekið til harðra sóknaraðgerða gegn Hamas og vakið með því fordæmingu alþjóðasamfélagsins, meira að segja meðal stuðningsmanna Ísraels.
Evrópskir og miðausturlenskir leiðtogar hittust á Spáni til að kalla eftir því að hinu „ómannúðlega“ og „tilgangslausa“ stríði ljúki.
Mannúðarsamtök hafa sömuleiðis gagnrýnt þá litlu hjálp sem borist hefur.
Utanríkisráðherra Spánar, Jose Manuel Albares, kallaði eftir vopnasölubanni gagnvart Ísrael og að mannúðaraðstoð til svæðisins gæti farið fram „í stórum stíl, skilyrðislaust og án íhlutunar Ísraels“. Svæðið væri „opið sár mankynns“.
Gagnrýni kanslara Þýskalands, Friedrich Merz, í kjölfar árásanna var óvenju hörð:
„Ég skil hvorki hvað Ísraelsher er að gera á Gasaströndinni né hvað vakir fyrir þeim lengur.“ Áhrifin á íbúa Gasa sé „ekki hægt að réttlæta lengur.“
Ísraelski herinn segir að árásin hafi hæft „lykilhryðjuverkamenn sem störfuðu með Hamas og samtökunum Íslamskt jíhad“. Í aðdraganda aðgerðanna hafi ýmsar ráðstafanir verið gerðar til að lágmarka skaða á almennum borgurum.