Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá kæru Jóns Óttars Ólafssonar á hendur ritstjórn Kveiks á RÚV, Ingólfi Bjarna Sigfússyni og Helga Seljan.

Málið varðar þátt Kveiks, sem var sendur út á RÚV 29. apríl, þar sem fjallað var um persónunjósnir um fjölda fólks árið 2012. Í þættinum var fjallað um starfsemi fyrirtækisins PPP slf. á árunum eftir hrun.
Í kæru segir: „Þann 29. apríl sl. sendi Ríkisútvarpið út þáttinn Kveik þar sem undirritaður var meðal annars til umfjöllunar. Vinnubrögð starfsmanna Ríkisútvarpsins við vinnslu þáttarins voru ámælisverð og varða að mati undirritaðs við siðareglur Blaðamannafélags Íslands.“
Siðanefndin segir í úrskurði sínum að í málsmeðferðarreglum nefndarinnar sé mælt fyrir um að hver sá sem telji að blaðamaður hafi brotið siðareglur og eigi hagsmuna að gæta geti kært ætlað brot til siðanefndar BÍ en áður skuli hann leita leiðréttingar hjá kærðum fjölmiðli.
Enn fremur skuli kæra hafa borist innan tveggja mánaða frá birtingu umfjöllunar, kæran skuli vera skrifleg, kæruefni skuli vera afmarkað með augljósum hætti og þá skuli afrit af hinni kærðu umfjöllun, eða hlekkur á hana á vef, fylgja með.
„Að mati siðanefndar uppfyllir kæra málsins ekki framangreind formskilyrði. Kæruefni málsins er ekki skýrt afmarkað, ekki er að sjá að leiðréttingar hafi verið leitað og þá fylgdi ekki með afrit af kærðri umfjöllun. Af þeim sökum er ekki annað hægt en að vísa málinu frá að svo stöddu.“