Gaf eiginmanninum einn á lúðurinn

Poppkúltúr | 27. maí 2025

Gaf eiginmanninum einn á lúðurinn

Brigitte Macron, forsetafrú Frakklands, virtist eitthvað ósátt við eiginmann sinn, Emmanuel Macron Frakklandsforseta, ef marka má myndskeið sem náðist af forsetahjónunum þegar þau lentu á flugvellinum í Hanoi í Víetnam á sunnudag.

Gaf eiginmanninum einn á lúðurinn

Poppkúltúr | 27. maí 2025

Hjónin virtust í góðu skapi er þau yfirgáfu Víetnam fyrr …
Hjónin virtust í góðu skapi er þau yfirgáfu Víetnam fyrr í dag. Ljósmynd/AFP

Brigitte Macron, for­setafrú Frakk­lands, virt­ist eitt­hvað ósátt við eig­in­mann sinn, Emm­anu­el Macron Frakk­lands­for­seta, ef marka má mynd­skeið sem náðist af for­seta­hjón­un­um þegar þau lentu á flug­vell­in­um í Hanoi í Víet­nam á sunnu­dag.

Brigitte Macron, for­setafrú Frakk­lands, virt­ist eitt­hvað ósátt við eig­in­mann sinn, Emm­anu­el Macron Frakk­lands­for­seta, ef marka má mynd­skeið sem náðist af for­seta­hjón­un­um þegar þau lentu á flug­vell­in­um í Hanoi í Víet­nam á sunnu­dag.

Brigitte, sem er 72 ára, sást ýta eig­in­manni sín­um, hinum 47 ára gamla Emm­anu­el, þegar þau voru við það að yf­ir­gefa flug­vél­ina.

Frakk­lands­for­seta var brugðið þegar Brigitte sló til hans, ef marka má svip­brigði hans á mynd­skeiðinu, en for­set­inn reyndi að létta and­rúms­loftið með því að brosa og veifa til blaðamanna og víet­namskra emb­ætt­is­manna sem biðu for­seta­hjón­anna við lend­ingu. 

Forsetahjónin virtust eitthvað ósátt er þau lentu á flugvellinum í …
For­seta­hjón­in virt­ust eitt­hvað ósátt er þau lentu á flug­vell­in­um í Hanoi á sunnu­dag. Ljós­mynd/​AFP

Mynd­skeiðið hef­ur, eins og við mátti bú­ast, verið í mik­illi dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum síðustu klukku­stund­ir og hafa tals­menn for­seta­hjón­anna reynt að þagga málið niður og haldið því fram að um sak­laus­ar hjóna­erj­ur hafi verið að ræða.

Brigitte og Emm­anu­el virðast hafa náð að vinna úr deil­um sín­um, en for­seta­hjón­in yf­ir­gáfu Víet­nam fyrr í dag og leidd­ust upp tröpp­urn­ar að flug­vél­inni, sátt og sæl.

Brigitte og Emmanuel Macron voru kátari í fasi eru þau …
Brigitte og Emm­anu­el Macron voru kát­ari í fasi eru þau gengu hönd í hönd upp tröpp­urn­ar að flug­vél­inni fyrr í dag. Ljós­mynd/​AFP
mbl.is