Jón Gunnar, Gurrý og Ásgeir fögnuðu afmæli Valhallar

Hverjir voru hvar | 27. maí 2025

Jón Gunnar, Gurrý og Ásgeir fögnuðu afmæli Valhallar

Það var heldur betur glatt á hjalla þegar Valhöll fasteignasala fagnaði 30 ára afmæli sínu síðastliðinn föstudag. Um 200 manns mættu í afmælisveisluna sem var haldin í glæsilegum húsakynnum Valhallar í Síðumúla 27.

Jón Gunnar, Gurrý og Ásgeir fögnuðu afmæli Valhallar

Hverjir voru hvar | 27. maí 2025

Það var einstök stemning á afmælisfögnuði Valhallar.
Það var einstök stemning á afmælisfögnuði Valhallar. Samsett mynd

Það var held­ur bet­ur glatt á hjalla þegar Val­höll fast­eigna­sala fagnaði 30 ára af­mæli sínu síðastliðinn föstu­dag. Um 200 manns mættu í af­mæl­is­veisl­una sem var hald­in í glæsi­leg­um húsa­kynn­um Val­hall­ar í Síðumúla 27.

Það var held­ur bet­ur glatt á hjalla þegar Val­höll fast­eigna­sala fagnaði 30 ára af­mæli sínu síðastliðinn föstu­dag. Um 200 manns mættu í af­mæl­is­veisl­una sem var hald­in í glæsi­leg­um húsa­kynn­um Val­hall­ar í Síðumúla 27.

Meðal gesta voru at­hafna­menn­irn­ir Ásgeir Kol­beins­son og Jón Gunn­ar Geir­dal, sem ásamt fleir­um gæddu sér á góm­sæt­um veit­ing­um og fljót­andi veig­um.

„Það var mjög gam­an að taka á móti öll­um þess­um góðu af­mæl­is­gest­um og finna að fólk hugsi svona hlýtt til Val­hall­ar á þess­um skemmti­legu tíma­mót­um. Það stend­ur mikið til á af­mælis­ár­inu og við nýir eig­end­ur ákváðum að halda mynd­ar­lega af­mæl­is­veislu ásamt því að vinna að ýms­um spenn­andi breyt­ing­um á rekstri Val­hall­ar, þar á meðal kynn­ingu á nýju lógói Val­hall­ar og nýrri og glæsi­legri heimasíðu.

Von­andi falla breyt­ing­arn­ar viðskipta­vin­um Val­hall­ar vel í geð og við get­um látið sól fyr­ir­tæk­is­ins skína sem aldrei fyrr,“ seg­ir Óskar H. Bjarna­sen fast­eigna­sali og ann­ar eig­andi Val­hall­ar.

Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson, eigendur Valhallar.
Óskar H. Bjarna­sen og Snorri Björn Sturlu­son, eig­end­ur Val­hall­ar. Ljós­mynd/​Aðsend

„Val­höll var fljót að stimpla sig inn á ís­lensk­an fast­eigna­sölu­markað“ 

Val­höll fast­eigna­sala var stofnuð af þeim Ingólfi Geir Giss­ur­ar­syni og Bárði Tryggva­syni í fe­brú­ar 1995. Faðir Ing­ólfs, Ásmund­ur Ólafs­son, stakk upp á því að fast­eigna­sal­an yrði nefnd Val­höll en hann var mik­ill áhugamaður um goðafræði. Fyrstu þrjú árin hafði Val­höll aðset­ur í Mörk­inni 3 í Reykja­vík en árið 1998 flutt­ist starf­sem­in í glæsi­legt skrif­stofu­hús­næði í Síðumúla 27 og hef­ur verið þar til húsa fram á dag­inn í dag.

Val­höll var fljót að stimpla sig inn á ís­lensk­an fast­eigna­sölu­markað og fjölgaði starfs­fólk­inu og verk­efn­un­um jafnt og þétt. Val­höll var áber­andi í sölu ný­bygg­inga og mátti sjá fána með merki Val­hall­ar blakta hátt á hinum ýmsu bygg­ing­ar­svæðum víðs veg­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

Þann 1. mars 2023 urðu mik­il vatna­skil í rekstri Val­hall­ar en þá tóku fast­eigna­sal­arn­ir og lög­fræðing­arn­ir Snorri Björn Sturlu­son og Óskar H. Bjarna­sen við rekstr­in­um. Ingólf­ur starfar þó áfram með nýj­um eig­end­um ásamt öðru öfl­ugu starfs­fólki fast­eigna­söl­unn­ar sem margt hef­ur unnið þar í ár­araðir. 

Ingólfur Geir Gissurarson og Pétur Freyr Pétursson.
Ingólf­ur Geir Giss­ur­ar­son og Pét­ur Freyr Pét­urs­son. Ljós­mynd/​Aðsend
Ásdís Ósk Valsdóttir, Lárus B. Lárusson og Sjöfn Þórðardóttir.
Ásdís Ósk Vals­dótt­ir, Lár­us B. Lárus­son og Sjöfn Þórðardótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend
Ásta María Gunnarsdóttir og Óskar H. Bjarnasen.
Ásta María Gunn­ars­dótt­ir og Óskar H. Bjarna­sen. Ljós­mynd/​Aðsend
Snorri Björn Sturluson og Gurrý Jónsdóttir.
Snorri Björn Sturlu­son og Gurrý Jóns­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend
Snorri Björn Sturluson, Matthildur Sunna Dan Þorláksdóttir og Helgi Guðmundsson.
Snorri Björn Sturlu­son, Matt­hild­ur Sunna Dan Þor­láks­dótt­ir og Helgi Guðmunds­son. Ljós­mynd/​Aðsend
Systkinin Jón Gunnar Geirdal og Freyja Geirdal.
Systkin­in Jón Gunn­ar Geir­dal og Freyja Geir­dal. Ljós­mynd/​Aðsend
Hera Gísladóttir og Ásgeir Kolbeinsson.
Hera Gísla­dótt­ir og Ásgeir Kol­beins­son. Ljós­mynd/​Aðsend
Hera Rut Hólmarsdóttir var hlutskörpust í verðmatsleik Valhallar.
Hera Rut Hólm­ars­dótt­ir var hlut­skörp­ust í verðmats­leik Val­hall­ar. Ljós­mynd/​Aðsend
Hólmgeir Elías Flosason og Sölvi Þór Sævarsson.
Hólm­geir Elías Flosa­son og Sölvi Þór Sæv­ars­son. Ljós­mynd/​Aðsend
Hrafnhildur Björk Baldursdóttir og Helga Lárusdóttir.
Hrafn­hild­ur Björk Bald­urs­dótt­ir og Helga Lár­us­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend
Hrafnhildur Björn Baldursdóttir, Óskar H. Bjarnasen, Hulda Hauksdóttir og Snorri …
Hrafn­hild­ur Björn Bald­urs­dótt­ir, Óskar H. Bjarna­sen, Hulda Hauks­dótt­ir og Snorri Björn Sturlu­son. Ljós­mynd/​Aðsend
Elín Alfreðsdóttir, fasteignasali hjá Valhöll.
Elín Al­freðsdótt­ir, fast­eigna­sali hjá Val­höll. Ljós­mynd/​Aðsend
Fasteignasalarnir Kristín Einarsdóttir og Guðný Ösp Ragnarsdóttir.
Fast­eigna­sal­arn­ir Krist­ín Ein­ars­dótt­ir og Guðný Ösp Ragn­ars­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend
Gestir giskuðu á verð á húsi.
Gest­ir giskuðu á verð á húsi. Ljós­mynd/​Aðsend
Gylfi Þór Gylfason, Guðmundur Karl Guðmundsson og Snorri Björn Sturluson.
Gylfi Þór Gylfa­son, Guðmund­ur Karl Guðmunds­son og Snorri Björn Sturlu­son. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is