Mikilvægt að skjalla Donald Trump

Sýrland | 27. maí 2025

Mikilvægt að skjalla Donald Trump

Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur er tiltölulega vongóður um að hagsmunir Tyrkja, Sádí-Araba, Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna fari saman og að komið verði á einhvers konar stöðugleika í Mið-Austurlöndum.

Mikilvægt að skjalla Donald Trump

Sýrland | 27. maí 2025

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Erl­ing­ur Erl­ings­son hernaðarsagn­fræðing­ur er til­tölu­lega vongóður um að hags­mun­ir Tyrkja, Sádí-Ar­aba, Banda­ríkja­manna og Ísra­els­manna fari sam­an og að komið verði á ein­hvers kon­ar stöðug­leika í Mið-Aust­ur­lönd­um.

    Erl­ing­ur Erl­ings­son hernaðarsagn­fræðing­ur er til­tölu­lega vongóður um að hags­mun­ir Tyrkja, Sádí-Ar­aba, Banda­ríkja­manna og Ísra­els­manna fari sam­an og að komið verði á ein­hvers kon­ar stöðug­leika í Mið-Aust­ur­lönd­um.

    Erl­ing­ur ræddi við Dag­mál um Sýr­land, stöðuna í Mið-Aust­ur­lönd­um, framtíðar­horf­ur og hvað Trump er lík­leg­ur til að ætla sér á svæðinu en Erl­ing­ur þekk­ir þar vel til.

    Hindra að Íran­ir nái fyrri áhrif­um

    „Þar er rauði þráður­inn í gegn, sem öll þessi ríki eiga sam­eig­in­legt, að hindra að Íran­ir nái aft­ur fyrri áhrif­um í Sýr­landi og í gegn­um Sýr­land, áhrif­um í Líb­anon.“

    Seg­ir Erl­ing­ur að á næstu sex til tólf mánuðum hvernig tak­ast muni til.

    Ekki beint lyk­ilmaður

    Hann seg­ir að þó Don­ald Trump verði ekki beint lyk­ilmaður í að ná fram stöðug­leika í Mið-Aust­ur­lönd­um skilji all­ir mik­il­vægi þess að hafa hann með sér og að flest­ir leiðtog­ar heims viti hversu mik­il­vægt er að skjalla Don­ald Trump og leyfa hon­um að fá ákveðinn sig­ur.

    „Ef hann skynj­ar að hann fái ein­hvers kon­ar vegtyllu í gegn­um sitt hlut­verk að stilla til friðar þá held ég að það séu allra hags­mun­ir og að all­ir séu til­bún­ir að leika þann leik gagn­vart hon­um,“ seg­ir Erl­ing­ur.

    Sýrlenskir hermenn nærri Latakíu í Suður-Sýrlandi.
    Sýr­lensk­ir her­menn nærri Latakíu í Suður-Sýr­landi. AFP
    mbl.is