Tímalína: Þolinmæði Trumps á þrotum

Úkraína | 27. maí 2025

Tímalína: Þolinmæði Trumps á þrotum

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur oft haldið því fram að samband hans og Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta sé gott. Það sagði hann einmitt í upphafi færslu sinnar á Truth Social á sunnudaginn.

Tímalína: Þolinmæði Trumps á þrotum

Úkraína | 27. maí 2025

Samsett mynd af Pútín og Trump.
Samsett mynd af Pútín og Trump. AFP/Olga Maltseva/Saul Loeb

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur oft haldið því fram að sam­band hans og Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta sé gott. Það sagði hann ein­mitt í upp­hafi færslu sinn­ar á Truth Social á sunnu­dag­inn.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur oft haldið því fram að sam­band hans og Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta sé gott. Það sagði hann ein­mitt í upp­hafi færslu sinn­ar á Truth Social á sunnu­dag­inn.


Kær­leik­ur­inn hvarf þó eins og dögg fyr­ir sólu því strax í næstu setn­ingu lýsti Trump því yfir að Pútín væri orðinn „gjör­sam­lega brjálaður!”.

Þarna var Trump að gagn­rýna um­fangs­mikl­ar loft­árás­ir Rússa á Úkraínu. Aðfaranótt laug­ar­dags og fram á sunnu­dag skutu Rúss­ar 367 drón­um og flug­skeyt­um í átt að Úkraínu sem er mesti fjöldi á einni nóttu síðan inn­rás Rússa hófst fyr­ir rúm­um þrem­ur árum.

Ekki fyrstu skamm­irn­ar frá Trump 

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Trump gagn­rýndi Pútín. BBC tók sam­an fleiri dæmi um skamm­ir sem rúss­neski leiðtog­inn hef­ur fengið í hatt­inn frá hon­um að und­an­förnu:

13. mars

Eft­ir viðræður á milli úkraínskra og banda­rískra samn­inga­manna í Sádí-Ar­ab­íu þar sem reynt var að koma á 30 daga vopna­hléi sagðist Trump vona að Pútín myndi „gera hið rétta í stöðunni” og samþykkja eða taka áhætt­una á „miklu von­brigðaaugna­bliki fyr­ir heims­byggðina”.

Samsett mynd af Trump og Pútín.
Sam­sett mynd af Trump og Pútín. AFP/​Drew An­g­erer/​Gavriil Grig­orov

30. mars

Pútín neitaði að samþykkja til­lög­una og dró í efa lög­mæti Selenskí Úkraínu­for­seta sem leiðtogi lands­ins. Trump sagðist vera „mjög reiður” og „pirraður” út í Rúss­lands­for­set­ann. Í viðtali við NBC hótaði Trump einnig aukn­um toll­um á „alla olíu sem kem­ur frá Rúss­land” ef í ljós kem­ur að Rúss­ar hafa komið í veg fyr­ir vopna­hlé.

24. apríl

Eft­ir flug­skeyta­árás Rússa á Kænug­arð, höfuðborg Úkraínu, þar sem 12 manns voru drepn­ir fauk veru­lega í Trump á Truth Social.

„Ég er ekki ánægður með árás­ir Rússa á Kænug­arð. Ekki nauðsyn­leg­ar og tíma­setn­ing­in mjög slæm. Vla­dimír, HÆTTU! 5.000 her­menn eru að deyja í viku hverri. Negl­um niður þenn­an friðarsamn­ing!” skrifaði hann.

26. apríl

Nokkr­um dög­um síðar póstaði Trump á nýj­an leik og sagði að „það er eng­inn ástæða fyr­ir Pútín að skjóta flug­skeyt­um á svæði í borg­um og bæj­um þar sem al­menn­ir borg­ar­ar eru stadd­ir”.

Hann bætti við: „Maður fer að velta fyr­ir sér að kannski vill hann ekki hætta stríðinu, hann er bara að draga mig á asna­eyr­un­um og það þarf að meðhöndla hann öðru­vísi, í gegn­um „banka­starf­semi” eða „frek­ari refsiaðgerðir?“ Alltof marg­ir eru að deyja!!!”

Samsett mynd af Volodimír Selenskí Úkraínuforseta, Trump og Pútín.
Sam­sett mynd af Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seta, Trump og Pútín. AFP

8. maí

Trump hótaði á nýj­an leik „frek­ari refsiaðgerðum” ef Rúss­ar samþykktu ekki vopna­hlé.

25. maí

Trump sagði Pútín „gjör­sam­lega brjálaðan” og sagði að eitt­hvað hefði komið fyr­ir hann, eft­ir um­gans­mikl­ar loft­árás­ir Rússa á Úkraínu. 

27. maí

Trump sagði Pútín vera að „leika sér að eld­in­um” í nýj­ustu færslu sinni á Truth Social. „Það sem Vla­dimír Pútín veit ekki er að ef það væri ekki fyr­ir mig hefðu marg­ir mjög slæm­ir hlut­ir komið fyr­ir Rúss­land, og ég meina VIRKI­LEGA SLÆMIR,” sagði Trump. „Hann er að leika sér að eld­in­um.“ Svo virðist sem þol­in­mæði Trumps gagn­vart Pútín sé á þrot­um. 

mbl.is