„Ég átta mig auðvitað á því að þetta sé óþægileg gagnrýni fyrir þau en ég sé þetta svona og þetta varð til þess að koma hreyfingu á málin sem er gott og ég þakka [stjórnarandstöðunni] fyrir að hafa tekið sönsum.”
„Ég átta mig auðvitað á því að þetta sé óþægileg gagnrýni fyrir þau en ég sé þetta svona og þetta varð til þess að koma hreyfingu á málin sem er gott og ég þakka [stjórnarandstöðunni] fyrir að hafa tekið sönsum.”
„Ég átta mig auðvitað á því að þetta sé óþægileg gagnrýni fyrir þau en ég sé þetta svona og þetta varð til þess að koma hreyfingu á málin sem er gott og ég þakka [stjórnarandstöðunni] fyrir að hafa tekið sönsum.”
Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun um umræður sem spunnust á þingfundi í gær og urðu á endanum til þess að samkomulag náðist milli þingflokksformanna um að færa umræður um frumvörp dómsmálaráðherra er varða útlendingamál framar á dagskrá.
Forsaga málsins er sú að um helgina sagði dómsmálaráðherra í viðtali að fulltrúar stjórnarandstöðunnar, sérstaklega Miðflokksmenn, stæðu í vegi fyrir því að frumvarp hennar er varða landamæraeftirlit og farþegalista á Keflavíkurflugvelli kæmist í gegnum þingið.
„Ég var í viðtali um helgina þar sem ég sagði að þessir tveir flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur, þyrftu bara að svara fyrir það að málþóf hefur afleiðngar.
Ég heyrði það að þeirra fulltrúar fóru að tala um að þetta mál mitt um landamæraeftirlit og farþegalista, sem hefur verið mikið kallað eftir, hafi verið neðanlega á dagskrá og þá segi ég; Já, auðvitað er það neðanlega á dagskrá því að hún haggast ekki. Hún haggast ekki á meðan það er málþóf í gangi í þinginu, málþóf sem að öll þjóðin sér að er í gangi,” segir Þorbjörg Sigríður.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu þessi ummæli harðlega í upphafi þingfundar í gær og bentu á að ríkisstjórnin færi með dagskrárvald á þinginu og gæti fært útlendingamál framar á dagskrá þingsins.
Líflegar umræður spunnust út frá þessu sem á endanum urðu til þess að hlé var gert á þingfundi þar sem þingflokksformenn settust niður og samkomulag náðist um að færa útlendingamál framar á dagskrá þingsins.
„Þau voru ekki ánægð með þessar athugasemdir mínar og höfðu ekki gaman af þeim en þetta varð þó til þess að þau settust niður að borðinu og við náðum samkomulagi og það var loksins hægt að ræða þetta mál,” segir Þorbjörg Sigríður og bætir við:
„Aldrei hafa formenn þingflokka þessara flokka verið að tala fyrir því á fundum þingflokksflokksformanna að lyfta þessu máli, aldrei.”
Þá segir hún aðspurð að veiðigjaldafrumvarpið sé langt frá því að vera eina áherslumál ríkisstjórnarinnar.
„Við erum með fullt af flaggskipum úti, það er mjög skýr taktur og tónn í útlendingamálum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um afturköllun verndar og um að taka úr sambandi séríslenskar reglur, til dæmis svokallaða 18 mánaða reglu sem að veitir fólki sjálfkrafa alþjóðlega vernd hér á landi við það eitt að málin hafa dregist í kerfinu og um landamæraeftirlit með farþegalistunum,” segir Þorbjörg Sigríður að lokum.