Vonast til að endurlífga son sinn

Poppkúltúr | 27. maí 2025

Vonast til að endurlífga son sinn

Áströlsk leikkona að nafni Clare McCann hefur blásið til söfnunar á vefsíðunni GoFundMe í þeirri von um að safna 195 þúsund bandaríkjadölum, eða sem samsvarar hátt í 25 milljónum íslenskra króna, til að láta djúpfrysta líkama ungs sonar hennar í von um að hægt verði að endurlífga hann í framtíðinni.

Vonast til að endurlífga son sinn

Poppkúltúr | 27. maí 2025

Atreyu McCann og Clare McCann.
Atreyu McCann og Clare McCann. Skjáskot/GoFundMe

Áströlsk leik­kona að nafni Clare McCann hef­ur blásið til söfn­un­ar á vefsíðunni GoFundMe í þeirri von um að safna 195 þúsund banda­ríkja­döl­um, eða sem sam­svar­ar hátt í 25 millj­ón­um ís­lenskra króna, til að láta djúp­frysta lík­ama ungs son­ar henn­ar í von um að hægt verði að end­ur­lífga hann í framtíðinni.

Áströlsk leik­kona að nafni Clare McCann hef­ur blásið til söfn­un­ar á vefsíðunni GoFundMe í þeirri von um að safna 195 þúsund banda­ríkja­döl­um, eða sem sam­svar­ar hátt í 25 millj­ón­um ís­lenskra króna, til að láta djúp­frysta lík­ama ungs son­ar henn­ar í von um að hægt verði að end­ur­lífga hann í framtíðinni.

McCann, sem er einnig kvik­mynda­gerðar­kona og blaðamaður í ástr­alska rík­inu Nýja Suður-Wales, greindi frá því nú fyr­ir helgi að 13 ára gam­all son­ur henn­ar, Atreyu McCann, hefði tekið sitt eigið líf eft­ir að hafa verið lagður í hrotta­legt einelti af skóla­fé­lög­um sín­um.

„Við höf­um aðeins eitt tæki­færi“

Á söfn­un­ar­síðunni seg­ist McCann hafa aðeins sjö daga til að safna heild­ar­upp­hæðinni.

„Við höf­um aðeins eitt tæki­færi til að frysta lík­ama hans og það verður að ger­ast inn­an næstu sjö daga. Ef við miss­um af þessu, þá miss­um við af tæki­fær­inu til end­ur­lífg­un­ar, en það er eitt­hvað sem vís­ind­in gætu einn dag­inn boðið upp á. Þetta snýst um von og rétt­læti. Ég neita að láta sögu son­ar míns enda í þögn,“ sagði McCann á GoFundMe-síðunni, sem var sett upp af vin­konu leik­kon­unn­ar.

McCann greindi frá því að pen­ing­arn­ir myndu fara í „taf­ar­lausa fryst­ingu og lög­mæt­an flutn­ing“, sem og „nauðsyn­lega lækn­is­fræðilega og lög­fræðilega þjón­ustu fyr­ir aðgerðina“, og sjóð í nafni Atreyu „til að vernda arf­leifð hans.“

Þeir fjár­mun­ir sem eft­ir verða munu fara í fræðslu og um­bæt­ur gegn einelti, stuðning við aðrar fjöl­skyld­ur sem ganga í gegn­um svipaðar aðstæður og lög­sókn „gegn stofn­un­um sem brugðust hon­um,“ eins og seg­ir á síðunni.

GoFundMe-síðan hef­ur safnað rúm­lega 2.700 banda­ríkja­döl­um, eða 1% af heild­ar­upp­hæðinni.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Cherry (@claremccannofficial)

mbl.is