Flestar umsagnir neikvæðar

Veiðigjöld | 28. maí 2025

Flestar umsagnir neikvæðar

Vestfirsku athafnalífi er stefnt í voða með veiðigjaldafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnandi Kerecis í umsögn sinni um frumvarpið.

Flestar umsagnir neikvæðar

Veiðigjöld | 28. maí 2025

Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnandi Kerecis.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnandi Kerecis. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Vest­firsku at­hafna­lífi er stefnt í voða með veiðigjalda­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, seg­ir Guðmund­ur Fer­tram Sig­ur­jóns­son stofn­andi Kerec­is í um­sögn sinni um frum­varpið.

Vest­firsku at­hafna­lífi er stefnt í voða með veiðigjalda­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, seg­ir Guðmund­ur Fer­tram Sig­ur­jóns­son stofn­andi Kerec­is í um­sögn sinni um frum­varpið.

„Með einu penn­astriki skal soga með hækk­un veiðigjalda meira en hálf­an millj­arð króna úr vest­firsku efna­hags­lífi til Reykja­vík­ur.“

Alls bár­ust at­vinnu­vega­nefnd Alþing­is 46 um­sagn­ir um veiðigjalda­frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar áður en frest­ur rann út á mánu­dag. Lang­flest­ar eru þær gagn­rýn­ar á frum­varpið og vinnu­brögðin við gerð þess.

Líf­tæknifyr­ir­tækið Kerec­is á Íslandi, sem spratt af sjáv­ar­út­vegi, skil­ar sjálf­stæðri um­sögn og var­ar við fljót­færni í laga­smíð. Frum­varpið krefj­ist „fag­legri meðferðar, auk­ins sam­ráðs, ít­ar­legri grein­ing­ar og nán­ari sam­fé­lagsum­ræðu“ áður en það fái af­greiðslu á Alþingi. Minnt er á hvað sé í húfi, út­flutn­ings­tekj­ur sjáv­ar­út­vegs hafi í fyrra numið nær 350 millj­örðum króna eða um 18% allra út­flutn­ingstekna.

„Slík­ir hags­mun­ir gera sjálf­sagða kröfu til rík­is­stjórn­ar og þings að vandað sé til verka og viðfangs­efnið meðhöndlað af þeirri virðingu sem það á skilið. Að öðrum kosti er ein meg­in­for­senda ís­lenskr­ar vel­ferðar í upp­námi með til­heyr­andi áhættu fyr­ir ís­lenskt sam­fé­lag.“

Sam­tök sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja (SFS) finna einnig að vinnu­brögðunum, en ganga lengra og saka ráðherra um vill­andi fram­setn­ingu.

Frum­varpið bygg­ist að hluta á vinnu dr. Sig­bjørns L. Tvetera­as, sem at­vinnu­vegaráðherra og fjár­málaráðherra sögðu við kynn­ingu frum­varps­ins „helsta sér­fræðing Nor­egs í verð­mynd­un á upp­sjáv­ar­fiski“. Þótt hann sé alls góðs mak­leg­ur sé hann ekki sér­fræðing­ur á þessu sviði og hafi þurft að afla sér grunn­upp­lýs­inga um norska kerfið áður en hann tók sam­an gögn fyr­ir ráðherr­ana. Í því hafi ekki fal­ist sam­an­burðar­grein­ing á verð­mynd­un á Ís­landi og í Nor­egi og raun­ar ekki á Ísland minnst. 

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

mbl.is