Málin í réttum farvegi

Alþingi | 28. maí 2025

Málin í réttum farvegi

„Eins og staðan er núna eru málin á góðum stað,“ segir Guðmundur Ingi Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, spurður hvort þingið muni ná að klára yfirstandandi mál fyrir þingfrestun 13. júní.

Málin í réttum farvegi

Alþingi | 28. maí 2025

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eyþór

„Eins og staðan er núna eru mál­in á góðum stað,“ seg­ir Guðmund­ur Ingi Sig­ur­jóns­son, þing­flokks­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurður hvort þingið muni ná að klára yf­ir­stand­andi mál fyr­ir þing­frest­un 13. júní.

„Eins og staðan er núna eru mál­in á góðum stað,“ seg­ir Guðmund­ur Ingi Sig­ur­jóns­son, þing­flokks­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurður hvort þingið muni ná að klára yf­ir­stand­andi mál fyr­ir þing­frest­un 13. júní.

Guðmund­ur seg­ist bjart­sýnn á að þingið nái að klára sín mál í júní­mánuði. Hann seg­ir að ekki þurfi að for­gangsraða þing­mál­um fyr­ir yf­ir­stand­andi þinglok eins og er. 

Í rétt­um far­vegi

„Nú er nefnd­ar­vika í gangi og sam­kvæmt þeim yf­ir­lit­um sem við höf­um yfir hana eru mál í rétt­um far­vegi,“ seg­ir Guðmund­ur Ari.

„Það er verið að klára gesta­kom­ur og af­greiða mál út úr nefnd­um. Svo fer það inn í þingsal,“ seg­ir hann í sam­tali við mbl.is. 

Næg­ur tími

„Það er svo verk­efni júní­mánaðar að sjá hvernig það spil­ast,“ seg­ir hann.

„Við sjá­um al­veg fyr­ir að það gef­ist næg­ur tími til að af­greiða mál­in í júní en svo verðum við auðvitað bara að bregðast við stöðunni eins og hún blas­ir svo við þegar líður á mánuðinn,“ seg­ir Guðmund­ur Ari.

mbl.is