Milljarðamæringurinn Elon Musk er gagnrýninn á útgjaldafrumvarp Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og segir frumvarpið til þess fallið að auka fjárlagahalla bandaríska ríkisins en ekki draga úr honum líkt og Trump hefur haft að markmiði sínu.

Telur Musk frumvarpið draga undan starfi ráðuneytis síns, „Department of Government Efficiency“ (DOGE), sem á að hreinsa til í ríkisrekstri.
„Ég varð fyrir vonbrigðum með að sjá þetta gríðarlega útgjaldafrumvarp, satt að segja, sem eykur fjárlagahallann, ekki bara minnkar hann, og grefur undan því starfi sem DOGE-teymið er að vinna,“ sagði Musk í viðtali á CBS News í gær.
Frumvarpið var samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í síðustu viku og fer nú til öldungadeildar. Frumvarpið leggur til víðtæka skattalækkun og niðurskurð í útgjöldum.
Einhverjir hafa áhyggjur af því að frumvarpið sé til þess fallið að auka þjóðarskuldir Bandaríkjanna um allt að fjóra milljarði dollara á næstu tíu árum og að það muni eyðileggja heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna.
Þetta er í eitt af fáu skiptum sem Musk hefur opinberlega gagnrýnt stefnu Trumps en hann var einn stærsti styrktaraðili forsetaframboðs hans.
Stephen Miller, aðstoðarstarfsmannastjóri Trumps, birti færslu á X eftir að viðtalinu við Musk var sjónvarpað í gær. Sagði hann að frumvarpið myndi ekki koma niður á starfsemi DOGE heldur þyrfti slíkt að fara í gegnum sérstakt frumvarp sem beindist gegn „skrifræði alríkisins“.
Tók hann jafnframt fram að frumvarpið væri ekki hluti af árlegri fjárlagaáætlun.