Utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur fyrirskipað að stöðva allar afgreiðslur um námsmannaleyfi erlendra námsmanna í Bandaríkjunum á meðan beðið er eftir frekari leiðbeiningum frá Bandaríkjastjórn.

Frá þessu greinir AFP-fréttastofan sem kveðst hafa séð skeyti undirritað af Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þess efnis.
Í skeytinu segir að utanríkisráðuneytið muni gefa út frekari leiðbeiningar um hvernig eigi að meðhöndla umsóknir um námsmannaleyfi á næstu dögum.
Tammy Bruce, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, vildi ekki tjá sig með beinum hætti um innihald skeytisins þegar eftir því var leitað. Sagði hann þó að ríkisstjórnin taki „mjög alvarlega ferlið að kanna hverjir það eru sem koma til landsins“.
Sagði hann að markmiðið væri að kanna hvort að fólk sem sæki um námsmannaleyfi í Bandaríkjunum „skilji lögin, hafi ekki glæpsamlegan ásetning og muni leggja sitt af mörkum til upplifunarinnar hér, sama hversu löng eða stutt dvöl þeirra verður“.
Spurður hvort erlendir nemendur sem hafa fengið samþykkta skólavist við bandaríska háskóla mættu búa sig undir að hefja nám sitt í haust svaraði Bruce ekki spurningunni beint en sagði að allir þeir nemendur ættu að gera ráð fyrir að vera skoðaðir.