Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur útilokað að ríkisstjórnin nái að klára þau mál sem liggja fyrir á þinginu áður en þingstörfum verður frestað og þingmenn fara í sumarfrí.
Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur útilokað að ríkisstjórnin nái að klára þau mál sem liggja fyrir á þinginu áður en þingstörfum verður frestað og þingmenn fara í sumarfrí.
Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur útilokað að ríkisstjórnin nái að klára þau mál sem liggja fyrir á þinginu áður en þingstörfum verður frestað og þingmenn fara í sumarfrí.
Bergþór segir í samtali við mbl.is að þetta sé staðreynd sem blasi við öllum nema ráðherrum en samkvæmt starfsáætlun Alþingis er áætlað að þingfrestun verði 13. júní næstkomandi.
„Miðað við málafjöldann sem liggur fyrir og hvernig staðan er á þeim málum í nefndum og á umræðum á þinginu tel ég að ráðherrarnir þurfi að taka eitt skref til baka og reyna að átta sig á hvað skuli leggja mesta áherslu á vegna þess að málastabbinn í heild sinni verður ekki kláraður,“ segir Bergþór.
Forgangsröðun mála á þinginu hefur sætt gagnrýni, fyrr í vikunni var frumvarp er varðar breytingar á útlendingalögum fært framar á dagskrá þingsins í kjölfar þess að stjórnarandstaðan gagnrýndi hve aftarlega umræður um frumvarpið voru á dagskrá þingsins.
„Það virðist einfaldlega allt farið í hund og kött í skipulagi valkyrjanna. Forgangsröðunin virðist lítil, stærstu málin dangla eins og mál sem engu skipta og öfugt. Ákveðin mál fara svo fram fyrir röð og það virðist fyrst og fremst gert til þess að friðþæga Flokk fólksins.“
„Ég veit ekki hvort þetta sé reynsluleysi, stjórnleysi eða yfirveguð ákvörðun að sigla málum í þennan farveg en ég er ansi hræddur um það að þinglokin gætu orðið þau skrautlegustu í langan tíma,“ segir Bergþór aðspurður um hans álit á forgangsröðun þingsins.
Það mál sem hvað mest hefur verið í umræðunni á þinginu síðastliðnar vikur og mánuði eru fyrirhugaðar hækkanir á veiðigjöldum. Bergþór bendir þó á að það séu fleiri mál á þinginu sem séu mjög stór og skipti verulegu máli.
Bergþór telur að ráðherrar ríkisstjórnarinnar upplifi að mikilvægt sé að klára málið fyrir þinglok. Bergþór bætir þó við að hann sé hræddur um að það yrði til mikils skaða fyrir ríkisstjórnina og samfélagið allt ef frumvarpið yrði keyrt í gegn „á aflinu einu“.
„Ég held að málinu hafi verið hent inn áður en það var tilbúið til þess að taka athygli fólks af ákveðnum málum Flokks fólksins. Ríkisstjórnin finnur sig nú í þeirri stöðu að þurfa að setja áherslu á að klára málið, sem er þó ekki tilbúið,“ segir Bergþór aðspurður að því af hverju hann telur að frumvarpið hafi verið lagt fram þrátt fyrir að margir bendi á að greiningarvinnu um áhrif frumvarpsins sé ábótavant.
Meðal þeirra mála sem liggja fyrir á þinginu þessa stundina er frumvarp til lögfestingar á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í frumvarpinu segir að lögfestingin muni ekki leiða til aukins kostnaðar fyrir sveitarfélög.
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur hins vegar bent á að samkvæmt greiningu sem var gerð af Haraldi Líndal Haraldssyni, hagfræðingi og fyrrverandi bæjarstjóra, muni lögfestingin koma til með að leiða til 15 milljarða kostnaðar fyrir sveitarfélög á ári hverju.
„Þetta hefur gríðarleg áhrif á sveitarfélög þrátt fyrir að samkvæmt frumvarpinu séu áhrifin engin. Ráðherrarnir virðast telja sig geta sagt bara eitthvað og vonað að það dugi í staðinn fyrir að setja sig inn í mál og greina þau,“ segir Bergþór um frumvarpið.