Væb-bræður undirbúa Evróputúr

Á ferðalagi | 28. maí 2025

Væb-bræður undirbúa Evróputúr

Bræðurnir Hálfdán Helgi og Matthías Davíð, betur þekktir sem VÆB-bræðurnir, undirbúa nú tónleikaferðalag um Evrópu og leita eftir ábendingum frá aðdáendum um hvert þeir ættu að leggja leið sína.

Væb-bræður undirbúa Evróputúr

Á ferðalagi | 28. maí 2025

VÆB-bræðurnir undirbúa tónleikaferð um Evrópu.
VÆB-bræðurnir undirbúa tónleikaferð um Evrópu. AFP

Bræðurn­ir Hálf­dán Helgi og Matth­ías Davíð, bet­ur þekkt­ir sem VÆB-bræðurn­ir, und­ir­búa nú tón­leika­ferðalag um Evr­ópu og leita eft­ir ábend­ing­um frá aðdá­end­um um hvert þeir ættu að leggja leið sína.

Bræðurn­ir Hálf­dán Helgi og Matth­ías Davíð, bet­ur þekkt­ir sem VÆB-bræðurn­ir, und­ir­búa nú tón­leika­ferðalag um Evr­ópu og leita eft­ir ábend­ing­um frá aðdá­end­um um hvert þeir ættu að leggja leið sína.

Í stuttu mynd­skeiði sem þeir birtu á TikT­ok fyrr í vik­unni spurðu þeir fylgj­end­ur sína ein­fald­lega:

„Hvaða borg­ir viljið þið sjá okk­ur í?“ 

Yfir sex þúsund til­lög­ur

Viðbrögðin létu ekki á sér standa og á nokkr­um dög­um hafa borist yfir sex þúsund at­huga­semd­ir með hug­mynd­um að áfanga­stöðum.

Bræðurn­ir stigu á svið fyr­ir Íslands hönd á Eurovisi­on 2025 í Basel í Sviss með lag­inu Róa og hlutu góðar und­ir­tekt­ir frá al­menn­ingi, ekki aðeins heima fyr­ir held­ur víða um heim­inn.

Vin­sæl­ustu borg­irn­ar

Fljót­lega fóru ákveðnir áfangastaðir að skera sig úr í at­huga­semda­flóðinu. Norður­lönd­in, Írland, Skot­land, Þýska­land, Pól­land og Spánn eru efst á blaði hjá mörg­um en einnig bár­ust fjöl­marg­ar áskor­an­ir um tón­leika í Aust­ur­ríki, Eistlandi og Lit­há­en svo fátt eitt sé nefnt.

Hér fyr­ir neðan má sjá til­kynn­ing­una:

mbl.is