Forseti Alþingis segir þingið „alvant því að vinna hratt á lokasprettinum, þá leggja sig allir fram“.
Forseti Alþingis segir þingið „alvant því að vinna hratt á lokasprettinum, þá leggja sig allir fram“.
Forseti Alþingis segir þingið „alvant því að vinna hratt á lokasprettinum, þá leggja sig allir fram“.
Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem einnig er þingmaður Samfylkingarinnar, í samtali við mbl.is, þegar hún varð spurð að því hvernig gangi að klára þingmál á síðustu vikum fyrir þinglok.
Síðasti þingfundur starfsáætlunar Alþingis er 12. júní. Þingfrestun er fyrirhuguð 13. júní. Í dag er síðasti dagur nefndardaga fyrir frestunina.
„Hvort allt verður afgreitt er engin leið að segja til um núna,“ segir Þórunn. Um leið segist hún vera bjartsýn á að ná að klára mörg af þeim málum sem liggja fyrir þinginu.
„Þetta hefur gengið vel hingað til,“ segir Þórunn. „Stjórnarfrumvörpin komu inn í tæka tíð fyrir frestinn sem rann út fyrsta apríl. Þannig að það hefur gefist ágætur tími í þingnefndum til að vinna málin,“ segir hún.
Þórunn segist eiga von á því að nefndardagar sem nú standa yfir á þinginu nýtist vel „en við sjáum það í lok vikunnar hversu margt verður afgreitt út úr nefndunum,“ segir hún.
„Það er oft hægt að semja um einhver mál. Það er gert á milli meirihluta og minnihluta. Miðað við að þingið hafi komið saman í byrjun febrúar þá er staðan mjög góð,“ segir Þórunn.