„Engin forgangsröðun og ekkert plan“

Alþingi | 30. maí 2025

„Engin forgangsröðun og ekkert plan“

„Þau þurfa að fara að setja fram forgangsröðun, því eins og þetta blasir við mér núna, þá er ekkert plan varðandi hvaða mál þau ætli að klára eða hvernig,“ segir Ingjörg Ólöf Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, spurð um hvort hún sé bjartsýn á að þingið nái að klára fyrirliggjandi mál fyrir þinglok. Þetta kemur fram í samtali við mbl.is.

„Engin forgangsröðun og ekkert plan“

Alþingi | 30. maí 2025

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þau þurfa að fara að setja fram for­gangs­röðun, því eins og þetta blas­ir við mér núna, þá er ekk­ert plan varðandi hvaða mál þau ætli að klára eða hvernig,“ seg­ir In­gj­örg Ólöf Isak­sen, þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurð um hvort hún sé bjart­sýn á að þingið nái að klára fyr­ir­liggj­andi mál fyr­ir þinglok. Þetta kem­ur fram í sam­tali við mbl.is.

„Þau þurfa að fara að setja fram for­gangs­röðun, því eins og þetta blas­ir við mér núna, þá er ekk­ert plan varðandi hvaða mál þau ætli að klára eða hvernig,“ seg­ir In­gj­örg Ólöf Isak­sen, þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurð um hvort hún sé bjart­sýn á að þingið nái að klára fyr­ir­liggj­andi mál fyr­ir þinglok. Þetta kem­ur fram í sam­tali við mbl.is.

Tæp­lega tvær vik­ur eru til fyr­ir­hugaðrar þing­frest­un­ar 13. júní. Síðasti þing­fund­ur starfs­áætl­un­ar Alþing­is er 12. júní.

Ingi­björg seg­ir að þó að þing­menn myndu sitja á þing­inu út júní sé ljóst að ekki sé næg­ur tími til stefnu ef vanda ætti vinn­una við laga­setn­ing­una.

Mis­tök geti verið dýr­keypt

„Það ligg­ur í hlut­ar­ins eðli. Ég held að það sé afar mik­il­vægt að við vönd­um vinn­una. Því í mín­um huga snýst þetta ekki um að koma fjölda mála í gegn­um þingið með hraði. Þetta snýst um gæðin, því mis­tök við laga­setn­ingu geta verið mjög dýr­keypt,“ seg­ir Ingi­björg.

Ingi­björg seg­ist ótt­ast að mál­in fái ekki þá málsmeðferð sem þau þurfi inni í nefnd­um þings­ins. „Við erum með lýðræðis­legt ferli inni á Alþingi, viss mál eiga að fá viss­an tíma í um­sagn­ar­ferli og við köll­um til okk­ar um­sagnaraðila sem fara yfir sín­ar um­sagn­ir og svara spurn­ing­um nefnd­ar­manna. Síðan veg­ur meiri og minni­hluti þær um­sagn­ir og hvort eigi að gera ein­hverj­ar breyt­ing­ar á frum­vörp­um eða ekki,“ seg­ir þing­flokks­formaður­inn.

Um­deild mál liggi fyr­ir

Þetta seg­ir Ingi­björg vera lýðræðis­lega mik­il­vægt. „Ef hraðinn á að vera slík­ur að það eigi að keyra mál hér í gegn án slíkr­ar umræðu. Þá hef ég áhyggj­ur af því að það halli veru­lega á lýðræðið í land­inu,“ seg­ir Ingi­björg.

Ingi­björg seg­ir mörg mik­il­væg mál liggja fyr­ir sem verði að klára. Þá séu einnig um­deild mál sem liggi fyr­ir sem þurfi lengri tíma. Þar vís­ar hún til veiðigjalda­frum­varps­ins. Það seg­ir hún hafa fengið lít­inn tíma í sam­ráðsgátt í sögu­legu sam­hengi.

„Það er auðvitað rík­is­stjórn­in sem er með dag­skrár­valdið til að for­gangsraða þeim mál­um sem hún vilja klára,“ seg­ir Ingi­björg.

„Að mínu mati, þá virðist ekki vera nein for­gangs­röðun og ekk­ert plan,“ seg­ir hún.

mbl.is