Hálf milljón manna svipt lagalegum réttindum

Hálf milljón manna svipt lagalegum réttindum

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað ríkisstjórn Trump að afturkalla lagaleg réttindi hundraða þúsunda innflytjenda frá Kúbu, Haítí, Níkaragva og Venesúela, í bili hið minnsta. 

Hálf milljón manna svipt lagalegum réttindum

Donald Trump Bandaríkjaforseti | 30. maí 2025

Dómsúrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna var óundirritaður.
Dómsúrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna var óundirritaður. AFP

Hæstirétt­ur Banda­ríkj­anna hef­ur heim­ilað rík­is­stjórn Trump að aft­ur­kalla laga­leg rétt­indi hundraða þúsunda inn­flytj­enda frá Kúbu, Haítí, Ník­aragva og Venesúela, í bili hið minnsta. 

Hæstirétt­ur Banda­ríkj­anna hef­ur heim­ilað rík­is­stjórn Trump að aft­ur­kalla laga­leg rétt­indi hundraða þúsunda inn­flytj­enda frá Kúbu, Haítí, Ník­aragva og Venesúela, í bili hið minnsta. 

Ákvörðunin nær til 532.000 manns sem komu til Banda­ríkj­anna und­ir svo­kallaðri skil­orðsáætl­un fyrr­um Banda­ríkja­for­set­ans Joe Biden.

Skil­orðsáætl­un­in heim­ilaði allt að 30.000 manns að koma til Banda­ríkj­anna á hverj­um mánuði í tvö ár vegna bágr­ar stöðu mann­rétt­inda í lönd­un­um fjór­um.

Hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ar mót­mæla

Tveir dóm­ara við rétt­inn, þær Ket­anji B. Jackson og Sonia Sotom­ayor, skiluðu séráliti og vöruðu við „hroðal­eg­um af­leiðing­um“ þess að snúa lífi hálfr­ar millj­ón manna á hvolf á meðan þeir bíða af­greiðslu á rétt­ar­kröf­um sín­um.

„Hæstirétt­ur hef­ur ein­fald­lega klúðrað mati sínu í dag,“ er haft eft­ir þeim. 

Dómsúrskurður hæstaréttar var óundirritaður.
Dóms­úrsk­urður hæsta­rétt­ar var óund­ir­ritaður. AFP/​Drew An­g­erer

Þær segja inn­flytj­end­urna eiga um tvennt að velja: að snúa aft­ur til heima­lands­ins og horf­ast í augu við þá hættu sem steðjar að þeim þar. 

Hinn val­kost­inn segja þær „að dvelj­ast áfram í Banda­ríkj­um og hætta á brott­vís­un,“ sem reynst hafi mörg­um erfið og harka­leg lífs­reynsla.

mbl.is