Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um strandveiðitímabil í sumar vera með ólíkindum. Þá bendi tímasetning framlagningar frumvarpsins til þess að umræða um það verði sem minnst.
Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um strandveiðitímabil í sumar vera með ólíkindum. Þá bendi tímasetning framlagningar frumvarpsins til þess að umræða um það verði sem minnst.
Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um strandveiðitímabil í sumar vera með ólíkindum. Þá bendi tímasetning framlagningar frumvarpsins til þess að umræða um það verði sem minnst.
Greint hefur verið frá því að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra vilji víkja frá skyldum Fiskistofu um að stöðva strandveiðar svo að hægt verði að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar.
Ráðherra yrði einnig heimilt að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða á fiskveiðiárinu en viðbótaraflamagn myndi dragast frá því magni sem dregið yrði frá heildaraflamarki og ætti að fullu að vera fært til baka eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2028/ 2029.
„Þetta er nú alveg með ólíkindum, þessi útfærsla atvinnuvegaráðherra, sem bannar þarna Fiskistofu að stöðva strandveiðar á fiskveiðiárinu þegar kvótinn er búinn,“ segir Bergþór í samtali við mbl.is.
„Við í stjórnarandstöðunni höfum, alveg frá því að þessi áform voru kynnt fyrst, verið að óska eftir því að atvinnuvegaráðherra upplýsi hvaðan hún ætlar að taka þessa viðbótarveiðiheimild en ráðherrann hefur svona komið sér undan því vikum og mánuðum saman.“
„Núna er í rauninni tekin þessi ákvörðun að rúlla þessu áfram í einhvers konar gúmmítékka, allt til næsta kjörtímabils,“ segir Bergþór og nefnir að miðað við hið nýja regluverk yrði umframkeyrsla hvers árs ekki jöfnuð út fyrr en á fiskveiðiárinu sem lyki árið 2029.
„[Það] er á næsta kjörtímabili þannig að þetta er allt mikil furða og það að menn núna, með þessum hætti í fyrsta skipti, ákveði að hunsa ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar – það er auðvitað stórpólitísk frétt og greinilega til þess ætluð að friða Flokk fólksins en dýr verður Flokkur fólksins allur með þessu áframhaldi,“ segir Bergþór og vísar þar til þess að Flokkur fólksins lagði mikla áherslu á að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar í síðustu þingkosningum.
Aðspurður segir Bergþór mikilvægt að það komi fram hvaðan ráðherrann hyggist sækja viðbótaraflaheimildir, þ.e. hvort það yrði í sértæka byggðarkvótann, línuívilnunina eða skel- og rækjubætur.
„Þetta eru allt saman upplýsingar sem við höfum verið að kalla eftir frá því að þessi ríkisstjórn var skrúfuð saman og enn kemur ráðherrann sér undan því að upplýsa um þetta.“
Núna eru rétt rúmar tvær vikur í að þingið fari í sumarfrí, áttu von á því að það náist að afgreiða frumvarpið fyrir þann tíma?
„Það kæmi mér mjög á óvart,“ segir Bergþór og heldur áfram:
„Og það væri sérstakt ef ráðherra biðst undan því að málið verði sent út til umsagnar sem að manni rennur nú í grun miðað við tímasetningu framlagningar málsins. Af því að það að vera að setja þetta fram núna um mánaðamótin maí-júní, þegar það er heill mánuður síðan strandveiðar hófust, það er eins og það sé sérstakt markmið að tryggja það að engin umræða verði um þetta mál, eða allavega sem allra minnst.“