Tinna í Hrím stækkar við sig

Heimili | 30. maí 2025

Tinna í Hrím stækkar við sig

Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi verslunarinnar Hrím, hefur sett íbúðina við Lágaleiti á sölu. Íbúðin er afar björt og rúmgóð með stórum gólfsíðum gluggum, gólfhita og aukinni lofthæð. 

Tinna í Hrím stækkar við sig

Heimili | 30. maí 2025

Tinna hefur sett íbúðina við Lágaleiti á sölu.
Tinna hefur sett íbúðina við Lágaleiti á sölu. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Tinna Brá Bald­vins­dótt­ir, eig­andi versl­un­ar­inn­ar Hrím, hef­ur sett íbúðina við Lága­leiti á sölu. Íbúðin er afar björt og rúm­góð með stór­um gólfsíðum glugg­um, gólf­hita og auk­inni loft­hæð. 

Tinna Brá Bald­vins­dótt­ir, eig­andi versl­un­ar­inn­ar Hrím, hef­ur sett íbúðina við Lága­leiti á sölu. Íbúðin er afar björt og rúm­góð með stór­um gólfsíðum glugg­um, gólf­hita og auk­inni loft­hæð. 

Tinna seg­ir hverfið ynd­is­legt og upp­haf­lega hafi hún ætlað að vera þarna í eitt ár. Nú eru árin hins veg­ar orðin fimm og tími til kom­inn að stækka við sig.

Þrjú rúm­góð svefn­her­bergi eru í íbúðinni og skipu­lagið gott með góðu flæði á milli eld­húss og stofu. Gengið er út á séraf­notareiti eign­ar­inn­ar ann­ars veg­ar úr stof­unni og hins veg­ar úr hjóna­her­berg­inu.

Íbúðin er máluð í skemmti­leg­um lit­um sem gera hana per­sónu­lega. Stof­an er máluð í svar­grá­um, ljós­fjólu­blá­um og kremlituðum tón­um sem all­ir passa vel sam­an. Her­berg­in eru máluð í svipuðum tón­um sem teng­ir rým­in vel sam­an. 

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Lága­leiti 11

Grín­ist­inn Ari Eld­járn og Tinna hafa verið par frá ár­inu 2023. 

Stofan er máluð í dökkum lit.
Stof­an er máluð í dökk­um lit. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Fallegir munir prýða íbúðina.
Fal­leg­ir mun­ir prýða íbúðina. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Samspil litanna á veggjunum skapar skemmtilega stemningu en Tinna hefur …
Sam­spil lit­anna á veggj­un­um skap­ar skemmti­lega stemn­ingu en Tinna hef­ur mikla færni í þeim efn­um. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Eldhúsið er opið inn í borðstofu og stofu en þó …
Eld­húsið er opið inn í borðstofu og stofu en þó í sérrými. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Íbúðin er björt og vel skipulögð.
Íbúðin er björt og vel skipu­lögð. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og útgengt út á viðarverönd.
Rúm­gott hjóna­her­bergi með góðu skápaplássi og út­gengt út á viðar­ver­önd. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Barnaherbergið er málað í dásamlegum lit í fjólubláum tón.
Barna­her­bergið er málað í dá­sam­leg­um lit í fjólu­blá­um tón. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
Á baðherberginu eru vandaðar flísar frá Marazzi.
Á baðher­berg­inu eru vandaðar flís­ar frá Marazzi.
Efstaleitið er eftirsótt hverfi.
Efsta­leitið er eft­ir­sótt hverfi. Ljós­mynd/​Gunn­ar Sverris­son
mbl.is