Donald Trump Bandaríkjaforseta fagnaði því í gær þegar áfrýjunardómstóll frestaði tímabundið réttaráhrifum af dómi sem mat tolla forsetans ólöglega. Tollar Trumps fá því að standa í bili.

Bandaríski alþjóðaviðskiptadómstóllinn kom á miðvikudag í veg fyrir að meirihluti af tollum Trumps tæki gildi.
Dómararnir þrír úrskurðuðu að Trump hefði farið út fyrir valdsvið sitt og bönnuðu flesta þá tolla sem tilkynntir höfðu verið síðan hann tók við embætti í janúar.
Í gær, ekki einu sinni sólarhring síðar, setti annar dómstóll þá ákvörðun á pásu, þar sem réttaráhrifum var frestað tímabundið.
Trump fagnaði og kallaði viðskiptadómstólinn „hræðilegan“ fyrir að hafa dæmt sér í óvil og sagði að ákvörðun dómstólsins ætti að vera snúið við að öllu leyti.
Scott Bessent fjármálaráðherra sagði að hökt væri á viðræðum Kínverja og Bandaríkjamanna en stakk upp á því að Trump myndi sjálfur eiga í viðræðum við starfsbróður sinn, Xi Jinping.
Kína og Bandaríkin höfðu nýlega frestað gagnkvæmum tollum sínum um 90 daga eftir að bæði löndin lögðu hvort öðru tolla upp á rúmlega hundrað prósent.