Ýjar að þingstörfum fram í ágúst

Alþingi | 30. maí 2025

Ýjar að þingstörfum fram í ágúst

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir í samtali við mbl.is að hann geti alveg trúað því að þingstörf myndu jafnvel dragast fram í ágúst.

Ýjar að þingstörfum fram í ágúst

Alþingi | 30. maí 2025

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis. mbl.is/Eyþór

Sig­ur­jón Þórðar­son, þingmaður Flokks fólks­ins og formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar Alþing­is, seg­ir í sam­tali við mbl.is að hann geti al­veg trúað því að þing­störf myndu jafn­vel drag­ast fram í ág­úst.

Sig­ur­jón Þórðar­son, þingmaður Flokks fólks­ins og formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar Alþing­is, seg­ir í sam­tali við mbl.is að hann geti al­veg trúað því að þing­störf myndu jafn­vel drag­ast fram í ág­úst.

Sam­kvæmt starfs­áætl­un þings­ins er gert ráð fyr­ir eld­hús­degi 11. júní og þing­frest­un tveim­ur dög­um síðar.

Takt­ur­inn þannig

Seg­ir Sig­ur­jón það ekki hafa verið rætt sér­stak­lega að þing­menn sitji að störf­um í sum­ar en seg­ir takt­inn í umræðunni í þing­inu þannig að hann reikni al­veg með því að það geti raun­gerst.

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­seti Alþing­is, sagði á dög­un­um í sam­tali við mbl.is að þingið væri al­vant að vinna hratt á loka­sprett­in­um.

Spurn­ing­in er hins veg­ar hvort og þá hversu mikið muni teygj­ast úr þeim loka­spretti.

mbl.is