7 létust þegar brýr voru sprengdar í Rússlandi

Úkraína | 1. júní 2025

7 létust þegar brýr voru sprengdar í Rússlandi

Minnst sjö er látnir og 69 slasaðir eftir að tvær brýr voru sprengdar nálægt landamærum Rússlands að Úkraínu í gær. 

7 létust þegar brýr voru sprengdar í Rússlandi

Úkraína | 1. júní 2025

Brúin sem sprengd var í Bryansk héraði.
Brúin sem sprengd var í Bryansk héraði. AFP

Minnst sjö er látn­ir og 69 slasaðir eft­ir að tvær brýr voru sprengd­ar ná­lægt landa­mær­um Rúss­lands að Úkraínu í gær. 

Minnst sjö er látn­ir og 69 slasaðir eft­ir að tvær brýr voru sprengd­ar ná­lægt landa­mær­um Rúss­lands að Úkraínu í gær. 

Fyrri brú­in var í Bry­ansk-héraði og var sprengd á sömu stundu og farþega­lest með 388 inn­an­borðs var und­ir henni. Fjór­um tím­um síðar var hin brú­in sprengd í Kursk-héraði þegar flutn­inga­lest ók yfir brúna.

Leyniþjón­usta úkraínska hers­ins lýsti því yfir að spreng­ing hefði komið rúss­neskri her­lest útaf spor­inu en gekkst ekki við því að hafa valdið spreng­ing­unni. Úkraínu­menn hafa þó áður fram­kvæmt sam­bæri­leg­ar árás­ir á svipuðum slóðum í Rússlandi.

Rúss­ar voru fljót­ir að saka Úkraínu­menn um að standa að baki verknaðinum, en spreng­ing­arn­ar áttu sér stað aðeins degi áður en fyr­ir­hugað var að friðarviðræður milli ríkj­anna tveggja héldu áfram í Ist­an­búl í Tyrklandi.

mbl.is