Þorbjörg Kristinsdóttir, alltaf kölluð Tobba, er mikill fagurkeri með skemmtilega litríkan fatastíl. Hún er 23 ára kennaranemi við Háskóla Íslands og leggur áherslu á myndlistarkennslu og sjónlistir. Hún starfar í íbúðarkjarna fyrir geðfatlaðar konur í Reykjavík og vinnur líka við að framleiða efni fyrir samfélagsmiðla. Hún lýsir sjálfri sér sem listrænum hugsanda, skapandi manneskju sem hefur mikinn áhuga á tísku og trendum.

Hvað er það fallegasta sem þú átt?
„Það er fallegi pelsinn minn með kúamynstri sem ég keypti í Parísarferð með kærastanum mínum í vetur. Mér finnst þetta vera einstök flík og fæ mikið hrós þegar ég klæðist honum.“
Hvað keyptir þú síðast?
„Gula Adidas Gazelle-strigaskó.“
Hvert er þitt uppáhaldshúsgagn?
„Það er gömul steríógræja frá ca. 1961, Huldra, frá Noregi. Afi minn, sem er fallinn frá, keypti hana á sínum tíma og var þetta fyrsta steríógræjan sem kom til Ólafsvíkur. Græjan er úr tekkviði og er bæði plötuspilari, segulband og útvarp.“
Hvernig efni finnst þér fallegust?
Ég elska fallegar flíkur úr gallaefni og klæðist mikið bæði gallakjólum, -jökkum og -buxum í alls konar litum.“
Áttu þér uppáhaldsfatahönnuð?
„Donatellu Versace. Ég dæmi aðallega út frá rauðadregilsviðburðum sem ég fylgist með eins og til dæmis Met Gala.“
Hvaða tískuhús var fyrst í röðinni til að heilla þig upp úr skónum?
„Ég get ekki sagt að neitt eitt tískuhús hafi heillað mig á undan öðrum en eftir að ég fór til Mílanó haustið 2023 og fór í Prada í Galleria Vittorio Emanuele II heillaðist ég mjög af þeim og fannst það mikil upplifun.“
Áttu þér uppáhaldsfataverslun hér á landi?
„Gina Tricot er klárlega mín uppáhalds frá því hún kom til landsins. Þar er hægt að finna bæði tísku, kósí og hversdagsfatnað sem er í þessum skandinavíska stíl sem ég elska að fylgja.“
Hver er uppáhaldssnyrtivaran?
„CC-kremið frá Erborian, sem mýkir húðina og dregur úr sýnileika þurra lína sem geta myndast á húðinni og það inniheldur einnig sólarvörn. Ég nota það bæði hversdags og fyrir fína förðun og það bregst mér aldrei.“
Hver er uppáhaldsmorgunmaturinn þinn?
„Hafragrautur sem kærastinn minn býr til alla morgna fyrir okkur. Það er líka mikil gæðastund sem við eigum saman.“
Hvað keyptir þú síðast inn á heimilið?
„Verk eftir Suru af sýningunni Drottningar sem var sett upp núna á Hönnunarmars 2025. Á verkinu stendur „Drottning á mínu heimili“.“
Uppáhaldsilmur?
„Burberry Goddess er dásamlegur vanilluilmur sem mér finnst henta á öllum árstíðum.“
Besti dagur lífsins?
„Það er vonlaust fyrir mig að segja einn ákveðinn dag en það eru dagarnir þar sem ég næ að njóta í núinu með fólkinu sem mér þykir vænt um.“
Uppáhaldshlaðvarp?
„Það er með Ingu Kristjánsdóttur. Ég elska alla þætti, myndir og hlaðvörp um sakamál og ég hef verið í áskrift hjá Illverk í fimm ár. Finnst ég samt verða að minnast einnig á Teboðið hjá Birtu líf og Sunnevu Einars þar sem þær fjalla mikið um tísku og önnur trend sem eru í gangi. Þær eru alltaf fyrstar með slúðurfréttirnar af fræga fólkinu sem ég hef mjög gaman af.“
Uppáhaldssamfélagsmiðill?
„Það er mjög erfitt að gera upp á milli Instagram og TiktTok en ef ég þyrfti að velja þá væri það það síðarnefnda. Mér finnst svo gaman að uppgötva nýja tónlist og tísku hjá öðru fólki. Einnig verð ég að nefna pinterest þar sem ég fæ mikinn innblástur varðandi tísku og pósur fyrir myndir.“