„Þetta var rosalega erfið og sársaukafull ákvörðun,“ sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, klökk í viðtali á Sprengisandi.

Ásthildur Lóa tók aftur sæti á þingi á mánudag. Hún tók sér tveggja mánaða frí frá þingstörfum eftir að hún sagði af sér ráðherraembætti í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um að hún hafi eignast barn með 16 ára dreng þegar hún var 22 ára.
Ásthildur Lóa segist sjá á eftir ráðuneytinu. Hún telur hins vegar að það hafi verið rétt ákvörðun að segja af sér embætti.
Spurð hvers vegna hún hafi tekið sér leyfi frá þingstörfum sagði Ásthildur Lóa umfjöllunina hafa verið áfall fyrir sig og sína fjölskyldu. „Við vorum bara brotin.“
„Þetta er rosalegt áfall. Ég eiginlega bara skreið í skjól, ég skreið í hýði. Ég talaði ekki við neinn. Ég fór ekki út, ég fór ekki út í búð eða neitt, vegna þess að andlitið á mér var út um allt. Þó að umræðan hafi snúist mér í vil alveg svakalega hratt þá var þetta bara ofboðslega óþægileg tilfinning,“ sagði Ásthildur Lóa.
Aðspurð sagðist hún vilja fara aftur í embætti mennta- og barnamálaráðherra, en að nýr ráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson, hafi hennar stuðning.
„Ég ætla ekki að fara í grafgötur með það, mig langar gríðarlega mikið að fara aftur í þetta embætti,“ sagði Ásthildur Lóa og bætti við:
„Það er komin þarna ráðherra og hann á allan minn stuðning. Það verður bara að koma í ljós hvað gerist í framtíðinni. Hvað mig langar og hver er raunveruleikinn það er kannski ekki endilega sami hluturinn. Maður verður bara að standa með þessari ákvörðun. Ég verð bara að gera það. Ég á ekki kröfu á það að starfandi ráðherra segi af sér eða eitthvað þess háttar. Ég á það ekki og kem ekki til með að gera hana.“