Úkraínumenn segjast hafa ráðist á um 40 rússneskar sprengiþotur í drónaárás í dag. BBC greinir frá.
Úkraínumenn segjast hafa ráðist á um 40 rússneskar sprengiþotur í drónaárás í dag. BBC greinir frá.
Samkvæmt yfirlýsingu frá öryggisþjónustu Úkraínu, SBU, stendur hún nú í stórfelldri hernaðaraðgerð þar sem markmiðið er að eyðileggja sprengjuflugvélar. Þar segir einnig að meira en 40 flugvélar hafi skemmst í árásinni.
Fregnir herma að eitt stærsta skotmark Úkraínumanna séu flugvélar á Olenya-flugvellinum, nálægt Múrmansk, en samkvæmt rússneskum fjölmiðlum hafa loftavarnarkerfi þar verið virkjuð.
Úkraínsk yfirvöld hafa einnig lýst því yfir að 472 drónar og sjö skot- og stýriflaugar hafi hitt um 385 skotmörk í gærkvöldi.