Friðarviðræður Úkraínu og Rússlands halda áfram í Istanbúl í Tyrklandi í dag en fulltrúar ríkjanna hittust í fyrsta sinn frá því stríðið hófst 2022 í tyrknesku höfuðborginni um miðjan maí.

Sá fundur skilaði frekar litlum árangri en þó náðist samkomulag um umfangsmikil fangaskipti, þau mestu frá því stríðið hófst.
Rustem Umerov varnarmálaráðherra fer fyrir úkraínsku sendinefndinni en Vladimir Medinsky, einn helsti rágjafi Vladimírs Pútíns, leiðir rússnesku sendinefndina.
Volodimír Selenski Úkraínuforseti sagði í gær að stjórnvöld í Rússlandi muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fundurinn í dag verði árangurslaus og bendir hann á að Rússar hafi ekki lagt fram neinar samningatillögur fyrir fundinn.
Viðræðurnar í dag koma í kjölfar öflugra drónaárása Úkraínumanna um helgina sem grandaði fjölda sprengjuflugvéla rússneska hersins. Selenskí sagði að árásin hafi heppnast frábærlega án blóðsúthellinga en úkraínsku leyniþjóstunni tókst að gera um 34% af árásarflugvélum rússneska hersins óstarfhæfar.