Kynnti varnaráætlun og varaði við ógn Rússa

Úkraína | 2. júní 2025

Kynnti varnaráætlun og varaði við ógn Rússa

Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, kynnti í dag varnaráætlun sem á að undirbúa ríkið undir stríðsátök í ljósi ógnar frá Rússum. Tilkynnt var meðal annars um að smíðaðir verði tólf nýir árásarkafbátar.

Kynnti varnaráætlun og varaði við ógn Rússa

Úkraína | 2. júní 2025

Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, kynnti nýja varnaráætlun í Glagow í …
Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, kynnti nýja varnaráætlun í Glagow í dag. AFP/Andy Buchanan

For­sæt­is­ráðherra Bret­lands, Keir Star­mer, kynnti í dag varn­aráætl­un sem á að und­ir­búa ríkið und­ir stríðsátök í ljósi ógn­ar frá Rúss­um. Til­kynnt var meðal ann­ars um að smíðaðir verði tólf nýir árás­arkaf­bát­ar.

For­sæt­is­ráðherra Bret­lands, Keir Star­mer, kynnti í dag varn­aráætl­un sem á að und­ir­búa ríkið und­ir stríðsátök í ljósi ógn­ar frá Rúss­um. Til­kynnt var meðal ann­ars um að smíðaðir verði tólf nýir árás­arkaf­bát­ar.

For­sæt­is­ráðherr­ann varaði við því að ógn­in sé yf­ir­vof­andi, al­var­legri, og ófyr­ir­sjá­an­legri en nokk­urn tím­ann síðan í kalda stríðinu, er hann kynnti áætl­un­ina í borg­inni Glasgow.

„Við stönd­um frammi fyr­ir stríði í Evr­ópu, nýrri kjarn­orku­hættu, dag­leg­um netárás­um, vax­andi sókn Rússa í hafsvæði okk­ar og ógn í háloft­un­um,“ bætti hann við.

AFP/​And­ty Buchan­an

Star­mer sagði að rík­is­stjórn hans stefndi að því að koma þrem­ur grund­vall­ar­breyt­ing­um á fót. 

„Í fyrsta lagi erum við að færa okk­ur yfir í að stríðsviðbúnaður sé meg­in­mark­mið herja okk­ar,“ sagði hann.

Í öðru lagi hélt for­sæt­is­ráðherr­ann því fram að varn­ar­mála­stefna Bret­lands myndi alltaf hafa NATO í önd­vegi og einnig sagði hann að Bret­land myndi leggja áherslu á hraðari ný­sköp­un í hernaði svo hægt sé að tak­ast á við ógn­ir dags­ins í dag og morg­undags­ins.

„Sér­hver hluti sam­fé­lags­ins, hver ein­asti borg­ari þessa lands, hef­ur hlut­verki að gegna, því við verðum að horf­ast í augu við að hlut­irn­ir hafa breyst í heim­in­um í dag. Víg­lín­an, ef svo má að orði kom­ast, er hér,“ bætti hann við.

mbl.is