Óraunhæft að þingfrestun verði á áætluðum tíma

Alþingi | 2. júní 2025

Óraunhæft að þingfrestun verði á áætluðum tíma

Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir í samtali við mbl.is markmið ríkisstjórnar um þinglok 13. júní heldur óraunhæft nú um stundir. 

Óraunhæft að þingfrestun verði á áætluðum tíma

Alþingi | 2. júní 2025

Bergþór Ólason.
Bergþór Ólason. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bergþór Ólason, þing­flokks­formaður Miðflokks­ins, seg­ir í sam­tali við mbl.is mark­mið rík­is­stjórn­ar um þinglok 13. júní held­ur óraun­hæft nú um stund­ir. 

Bergþór Ólason, þing­flokks­formaður Miðflokks­ins, seg­ir í sam­tali við mbl.is mark­mið rík­is­stjórn­ar um þinglok 13. júní held­ur óraun­hæft nú um stund­ir. 

Þing­flokks­for­menn hafa ekki fundað síðan í þar síðustu viku vegna nefnda­viku sem fór fram í síðustu viku en fund­ur for­seta með for­mönn­um þing­flokka verður í dag kl. 11. 

„Ekk­ert farn­ir að grisja mála­skóg sinn"

„Það blas­ir við að það er mik­ill fjöldi mála sem rík­is­stjórn­in ætl­ar sér að ná í gegn fyr­ir þinglok og ég verð nú að segja að mér þykir það held­ur óraun­hæft nú um stund­ir miðað við að ráðherr­arn­ir eru ekk­ert farn­ir að grisja mála­skóg sinn,“ seg­ir Bergþór. 

Hann seg­ir eng­ar þreif­ing­ar eða samn­ingaviðræður hafa átt sér stað milli stjórn­ar og stjórn­ar­and­stöðu. „Það verður svona aðeins að láta á það reyna hvernig stjórn­ar­flokk­arn­ir ætla að spila úr þess­ari þröngu stöðu sem þeir hafa komið sér í.“

Sam­kvæmt starfs­áætl­un Alþing­is á þing­inu að ljúka þann 13. júní. 

„Það er nátt­úru­lega al­veg óraun­hæft ef þau ætla sér að klára eitt­hvað af þess­um mál­um sem þau segj­ast leggja mesta áherslu á en ef að þau mál eru hvert á fæt­ur öðru að sigla í strand hvort sem er þá er kannski allt eins gott að klára þetta þarna þann 13.,“ seg­ir Bergþór en málið skýrist e.t.v. bet­ur eft­ir fund­inn. 



mbl.is