Rússum vex ásmegin í sókn sinni

Úkraínustríðið | 2. júní 2025

Rússum vex ásmegin í sókn sinni

Rússneskir hermenn hertu sókn sína í nágrannalandinu Úkraínu, er þeir nú hafa herjað á síðan þeir réðust á Úkraínumenn í febrúar fyrir rúmum þremur árum, og námu landvinningar þeirra í maímánuði nýliðnum 507 ferkílómetra svæði.

Rússum vex ásmegin í sókn sinni

Úkraínustríðið | 2. júní 2025

Úkraínskur hermaður hvílir lúin bein á bekk í Kramatorsk-garðinum í …
Úkraínskur hermaður hvílir lúin bein á bekk í Kramatorsk-garðinum í Dónetsk í dag. Rússar hertu sókn sína til muna í maí og sölsuðu undir sig 507 ferkílómetra af úkraínsku landsvæði. AFP/Florent Vergnes

Rúss­nesk­ir her­menn hertu sókn sína í ná­granna­land­inu Úkraínu, er þeir nú hafa herjað á síðan þeir réðust á Úkraínu­menn í fe­brú­ar fyr­ir rúm­um þrem­ur árum, og námu land­vinn­ing­ar þeirra í maí­mánuði nýliðnum 507 fer­kíló­metra svæði.

Rúss­nesk­ir her­menn hertu sókn sína í ná­granna­land­inu Úkraínu, er þeir nú hafa herjað á síðan þeir réðust á Úkraínu­menn í fe­brú­ar fyr­ir rúm­um þrem­ur árum, og námu land­vinn­ing­ar þeirra í maí­mánuði nýliðnum 507 fer­kíló­metra svæði.

Frá þessu grein­ir AFP-frétta­stof­an og ber banda­rísku stríðsgrein­ing­ar­stofn­un­ina Institu­te for the Stu­dy of War, ISW, fyr­ir töl­fræðinni.

Er fram­rás Rússa því öllu víðfeðmari en í apríl þegar þeir lögðu und­ir sig 379 fer­kíló­metra og mun meiri að um­fangi en í mars þegar flat­ar­mál land­vinn­inga þeirra nam 240 fer­kíló­metr­um.

5.107 fer­kíló­metr­ar und­ir járn­hæl Pútíns

Dó­netsk-héraðið var á ný orðið helsta áherslu­mál rúss­neska inn­rás­ar­hers­ins í maí þar sem hann sölsaði und­ir sig tæp­lega 400 fer­kíló­metra og auðnaðist Úkraínu­mönn­um ekki að hrifsa til baka neitt af því sem Rúss­ar höfðu af þeim í nýliðnum mánuði. Sömu sögu er að segja frá síðustu tólf mánuðum sem ekki hafa fært Úkraínu­mönn­um nokkuð af her­tekn­um landsvæðum á ný.

Sé litið til þess tíma, frá júní­mánuði í fyrra fram til maí í ár, nema land­vinn­ing­ar Rússa í inn­rás þeirra alls 5.107 fer­kíló­metr­um sem þó er inn­an við eitt pró­sent af úkraínsku yf­ir­ráðasvæði miðað við um­fang þess þegar stríðið hófst í fe­brú­ar 2022.

Að öllu virtu – Krímskag­inn og Don­bass-héraðið þá meðtal­in – lutu 19 pró­sent úkraínsks landsvæðis rúss­neskri stjórn við lok maí­mánaðar.

Sókn Rússa fékk einnig byr und­ir báða vængi í fyrra­vor þegar her­ir þeirra hrifsuðu til sín 449 fer­kíló­metra í maí eft­ir að þeir náðu und­ir járn­hæl sinn 111 fer­kíló­metr­um í apríl og 50 í mars.

mbl.is