Segir meintar njósnir á hans vegum séu rangar

Gagnastuldur og njósnir PPP | 2. júní 2025

Segir meintar njósnir á hans vegum séu rangar

Björgólfur Thor Björgólfsson segir í yfirlýsingu að hann hafi kosið að svara ekki ásökunum sem á hann voru bornar í sjónvarpsþættinum Kveik sem birtist á RÚV í lok apríl. 

Segir meintar njósnir á hans vegum séu rangar

Gagnastuldur og njósnir PPP | 2. júní 2025

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. Ljósmynd/Aðsend

Björgólf­ur Thor Björgólfs­son seg­ir í yf­ir­lýs­ingu að hann hafi kosið að svara ekki ásök­un­um sem á hann voru born­ar í sjón­varpsþætt­in­um Kveik sem birt­ist á RÚV í lok apríl. 

Björgólf­ur Thor Björgólfs­son seg­ir í yf­ir­lýs­ingu að hann hafi kosið að svara ekki ásök­un­um sem á hann voru born­ar í sjón­varpsþætt­in­um Kveik sem birt­ist á RÚV í lok apríl. 

„Ástæðan er að lang­ur tími er liðinn frá um­rædd­um at­b­urðum og sann­reyna þurfti upp­lýs­ing­ar sem komu fram. Í grunn­inn snýr málið að meint­um gagnaleka á viðkvæm­um upp­lýs­ing­um í fór­um stjórn­valda. Það voru aðrir en ég sem höndluðu með þau gögn og þurfa að svara fyr­ir það,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu frá Björgólfi.

Hann seg­ir að sá hluti máls­ins sem teng­ist hon­um og snúi að full­yrðing­um um meint­ar njósn­ir á hans veg­um sé ein­fald­lega rang­ur. Hann seg­ir að upp­tök­urn­ar sem sýnd­ar voru í þætt­in­um hafi hann séð fyrst þann 30. apríl, á sama tíma og aðrir lands­menn.

Nokkr­ar staðreynda­vill­ur

„Árið 2012 buðu full­trú­ar PPP (Pars Per Pars) sig fram að fyrra bragði til að afla upp­lýs­inga um aðila sem þá voru að und­ir­búa hóp­mál­sókn gegn mér. PPP hafði þá starfað fyr­ir op­in­bera aðila og lög­manns­stof­ur og starf­sem­in var kynnt sem lög­leg upp­lýs­inga­öfl­un. Nokkr­ar staðreynda­vill­ur komu fram í þætti Kveiks. Til að mynda voru, sam­kvæmt bók­halds­gögn­um, greidd­ar 8 millj­ón­ir króna fyr­ir verk­efnið, en ekki 33 millj­ón­ir eins og haldið hef­ur verið fram,“ seg­ir Björgólf­ur í yf­ir­lýs­ing­unni.

Þykir miður að per­sónu­upp­lýs­ing­um fólks hafi verið safnað

„Það kom mér í opna skjöldu að sjá í Kveiksþætt­in­um hversu langt starfs­menn PPP gengu í tengsl­um við þess­ar rann­sókn­ir. Upp­tök­ur voru aldrei af­hent­ar mér né starfs­fólki mínu og voru því aldrei nýtt­ar af okk­ur á nokk­urn hátt. Það kom ekk­ert út úr þessu verk­efni og eng­in frek­ari verk­kaup urðu af okk­ar hálfu,“ seg­ir hann enn frem­ur í yf­ir­lýs­ing­unni og bæt­ir við:

„Mér þykir miður að per­sónu­upp­lýs­ing­um fólks hafi verið safnað og setið hafi verið um heim­ili þess — slík vinnu­brögð for­dæmi ég og hefði aldrei samþykkt ef mér hefði verið þau ljós.“

Björgólf­ur seg­ist fagna því að dóms­málaráðherra hafi beint sjón­um sín­um að rann­sókn á því hvernig trúnaðar­upp­lýs­ing­um í hirsl­um sér­staks sak­sókn­ara var lekið og hverj­ir keyptu þau gögn. Hann seg­ist ekk­ert með það leka­mál að gera.

mbl.is