Anna Margrét og Árni Harðarson selja höll við Þingvallavatn

Heimili | 3. júní 2025

Anna Margrét og Árni Harðarson selja höll við Þingvallavatn

Anna Margrét Jónsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning, flugfreyja og ferðamálafræðingur, og Árni Harðarson, aðstoðarforstjóri Alvogen, hafa sett sumarbústað sinn við Þingvallavatn á sölu. Það er kannski hæpið að kalla þetta sumarbústað því um er að ræða glæsilegt heilsárshús sem búið er að endurnýja og betrumbæta. Eða svokallaða höll. 

Anna Margrét og Árni Harðarson selja höll við Þingvallavatn

Heimili | 3. júní 2025

Anna Mar­grét Jóns­dótt­ir, fyrr­ver­andi feg­urðardrottn­ing, flug­freyja og ferðamála­fræðing­ur, og Árni Harðar­son, aðstoðarfor­stjóri Al­vo­gen, hafa sett sum­ar­bú­stað sinn við Þing­valla­vatn á sölu. Það er kannski hæpið að kalla þetta sum­ar­bú­stað því um er að ræða glæsi­legt heils­árs­hús sem búið er að end­ur­nýja og betr­um­bæta. Eða svo­kallaða höll. 

Um er að ræða 219 fm hús sem reist var 1941. Upp­runa­lega húsið var hannað af Guðmundi Kr. Guðmunds­syni arki­tekt. Árið 1989 var byggt sér­stakt baðhús á lóðinni sem stend­ur enn en síðan þá hef­ur verið bætt við gesta­húsi og svo er líka báta­skýli á lóðinni. Stein­unn Eik arki­tekt hannaði ver­önd­ina sem prýðir garðinn en hún teng­ir sam­an hús­in á lóðinni.

Í aðal­hús­inu er ný­leg inn­rétt­ing frá danska hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Vipp. Inn­rétt­ing­arn­ar eru úr súkkulaðibrúnni eik og með kampa­vínslituðum marm­ara á eyj­unni. Upp­haf­lega var Vipp fyr­ir­tæki sem fram­leiddi stál­heiðarleg­ar rusla­tunn­ur en síðasta ára­tug­inn hef­ur fyr­ir­tækið vaxið í átt að nú­tíma­fólki sem vill hafa það gott. Líkt og Anna Mar­grét og Árni. 

Fast­eigna­mat þess­ar­ar hall­ar við Þing­valla­vatn er 60.750.000 kr. og er óskað eft­ir til­boði í eign­ina. 

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Heiðarbær 

mbl.is