„Hvorki verið talað við kóng né prest“

Alþingi | 3. júní 2025

„Hvorki verið talað við kóng né prest“

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ríkisstjórnin sé búin að skapa gífurlega óvissu hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Skipt hafi verið um lögreglustjóra vegna pólitískra áherslna, breytingar boðaðar en á sama tíma hafi starfsmenn embættisins ekki verið upplýstir um þær breytingar sem séu í vændum. 

„Hvorki verið talað við kóng né prest“

Alþingi | 3. júní 2025

Vilhjálmur skorar á dómsmálaráðherra að heimsækja embættið.
Vilhjálmur skorar á dómsmálaráðherra að heimsækja embættið. Samsett mynd/mbl.is/Árni/Eggert/Karítas

Vil­hjálm­ur Árna­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, seg­ir að rík­is­stjórn­in sé búin að skapa gíf­ur­lega óvissu hjá embætti lög­reglu­stjór­ans á Suður­nesj­um. Skipt hafi verið um lög­reglu­stjóra vegna póli­tískra áherslna, breyt­ing­ar boðaðar en á sama tíma hafi starfs­menn embætt­is­ins ekki verið upp­lýst­ir um þær breyt­ing­ar sem séu í vænd­um. 

Vil­hjálm­ur Árna­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, seg­ir að rík­is­stjórn­in sé búin að skapa gíf­ur­lega óvissu hjá embætti lög­reglu­stjór­ans á Suður­nesj­um. Skipt hafi verið um lög­reglu­stjóra vegna póli­tískra áherslna, breyt­ing­ar boðaðar en á sama tíma hafi starfs­menn embætt­is­ins ekki verið upp­lýst­ir um þær breyt­ing­ar sem séu í vænd­um. 

Þetta kom fram í ræðu Vil­hjálms á Alþingi und­ir liðnum störf þings­ins.

Vil­hjálm­ur benti á að embættið, sem 225 manns starfa hjá, hefði á und­an­förn­um árum glímt við áskor­an­ir á borð við heims­far­ald­ur, jarðhrær­ing­ar og aukna bú­setu inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda. 

„Um helm­ing­ur bú­setu­úr­ræða Vinnu­mála­stofn­un­ar var þar – í til­tölu­lega litlu sam­fé­lagi – sett á einn stað á sama tíma og álagið á landa­mær­un­um jókst gríðarlega, en þetta embætti er með um 15–20 fanga í gæslu­v­arðhaldi á hverj­um tíma,“ sagði Vil­hjálm­ur. 

Starfs­menn viti ekki hver stefn­an sé

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra ákvað að aug­lýsa starf Úlfars Lúðvíks­son­ar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra, og í kjöl­farið sagði hann upp störf­um. Þor­borg sagði seinna meir að þetta hefði verið póli­tísk ákvörðun hjá sér og að það yrðu breyt­ing­ar á embætt­inu.

Ekki hef­ur feng­ist á hreint hverj­ar þess­ar póli­tísku áhersl­ur eru og Vil­hjálm­ur seg­ir að starfs­menn embætt­is­ins viti held­ur ekki hvað framtíðin beri í skauti sér. 

„Nú er búið að segja yf­ir­mann­in­um upp út af póli­tísk­um áhersl­um og fyr­ir­huguðum breyt­ing­um á embætt­inu en það veit eng­inn af þess­um 225 [starfs­mönn­um] hver stefn­an er. Það er ekk­ert frum­varp komið fram. Það eru eng­ar fyr­ir­ætlan­ir aðrar en „póli­tísk áhersla“ og að það eigi að breyta verk­efn­un­um. Það hef­ur hvorki verið talað við kóng né prest,“ sagði hann. 

Hús­næðið myglað

Vil­hjálm­ur tók einnig fram að starf­semi lög­regl­unn­ar gæti ekki farið eðli­lega fram því því að hús­næði lög­regl­unn­ar er myglað og allt stopp í fram­kvæmd­um.

„Hvernig væri nú að hæst­virt­ur dóms­málaráðherra færi og talaði við þetta fólk sem er að vinna gríðarlega mik­il­vægt verk­efni, gríðarlega stór verk­efni og gríðarlega mik­il­væg verk­efni? Það eru mjög krefj­andi og erfiðar aðstæður og svo er bara al­ger óvissa í boði stjórn­enda. Svona er ekki hægt að koma fram við svona mik­il­væga stofn­un og mik­il­vægt starfs­fólk sem tel­ur 225 manns,“ sagði hann að lok­um. 

mbl.is