Ísland skrifaði ekki undir ákall til MDE

Alþingi | 3. júní 2025

Ísland skrifaði ekki undir ákall til MDE

Ísland var ekki meðal þeirra níu Evrópuþjóða sem skrifuðu undir yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem farið er fram á endurmat á núgildandi túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á réttindum hælisleitenda sem gerst hafa uppvísir að glæpum.

Ísland skrifaði ekki undir ákall til MDE

Alþingi | 3. júní 2025

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eyþór Árnason

Ísland var ekki meðal þeirra níu Evr­ópuþjóða sem skrifuðu und­ir yf­ir­lýs­ingu í síðasta mánuði þar sem farið er fram á end­ur­mat á nú­gild­andi túlk­un Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu á rétt­ind­um hæl­is­leit­enda sem gerst hafa upp­vís­ir að glæp­um.

Í óund­ir­bún­um fyr­ir­spurn­um á Alþingi í gær sagði Kristrún Frosta­dótt­ir að ekki hefði borist sér­stök beiðni um þátt­töku frá ríkj­un­um þegar hún var spurð út í það af hverju Ísland hefði ekki verið með. Sagði hún mik­il­væg­ara að klára þau mál sem þegar væru til af­greiðslu hjá þing­inu, svo sem aft­ur­köll­un á alþjóðlegri vernd ein­stak­linga og gang­setn­ingu lokaðs bú­setu­úr­ræðis á landa­mær­un­um.

Ekki þyrfti að standa í gagn­rýni á Mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu til þess að vinna að um­bót­um á Íslandi. 

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

mbl.is