Launahækkun í vasa þingmanna og ráðherra

Alþingi | 3. júní 2025

Launahækkun í vasa þingmanna og ráðherra

Laun þingmanna, ráðherra, forseta sem og æðstu embættismanna hækka um 5,6% um mánaðamótin næstkomandi.

Launahækkun í vasa þingmanna og ráðherra

Alþingi | 3. júní 2025

Þingfararkaup hækkar um 85 þúsund krónur.
Þingfararkaup hækkar um 85 þúsund krónur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Laun þing­manna, ráðherra, for­seta sem og æðstu emb­ætt­is­manna hækka um 5,6% um mánaðamót­in næst­kom­andi.

Laun þing­manna, ráðherra, for­seta sem og æðstu emb­ætt­is­manna hækka um 5,6% um mánaðamót­in næst­kom­andi.

Laun­in eru upp­færð ár­lega í sam­ræmi við meðallauna­hækk­un al­mennra rík­is­starfs­manna.

Rúv grein­ir frá. 

Al­mennt þing­far­ar­kaup er nú rúm­lega 1,6 millj­ón króna og hækk­ar það um 85 þúsund krón­ur á milli ára. Ráðherra­laun er nú rúm­ar 2,6 millj­ón­ir króna, laun for­sæt­is­ráðherra eru um 2,9 millj­ón­ir króna. Laun for­seta Íslands eru nú um 4,25 millj­ón­ir króna. 

Venju­legt fólk súpi seyðið

Halla Gunn­ars­dótt­ir, formaður VR, gagn­rýn­ir launa­hækk­un­ina harðlega á Face­book-síðu sinni fyrr í dag. 

Gagn­rýni Höllu bein­ist að því að laun ráðamanna hækki nú um 5,6% á grund­velli sjálf­virkr­ar hækk­un­ar á meðan að al­mennt launa­fólk þurfi að sætta sig við 3,5% hækk­un á grund­velli kjara­samn­ings.

Ráðamenn þurfa að sögn Höllu ekki að súpa seyðið af hækk­andi verðlagi á sama hátt og venju­legt fólk en færsl­una má sjá hér að neðan. 

mbl.is