„Ég hef haft ákveðnar áhyggjur af landamærunum en við erum líka að grípa til ákveðinna aðgerða,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Mikil umræða hefur átt sér stað að undanförnu um eftirlit á landamærum Íslands. Var t.a.m. greint frá því í gær að takmarkað gagn er af farþegalistum í þágu löggæslu þegar flogið er til landsins frá öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins, þar sem þær upplýsingar sem farþegar gefa eru ekki staðfestar með vegabréfaeftirliti.
Þá hefur Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri Suðurnesja, farið mikinn síðan hann lét af störfum sem lögreglustjóri og t.d. sagt að æðstu stjórnendur ríkisins hafi látið undir höfuð leggjast að taka á bráðavanda sem felist í því að innri landamæri Schengen-svæðisins séu galopin.
Í samtali við mbl.is segist Kristrún hafa haft áhyggjur af stöðunni á landamærunum síðustu ár. Ekki hafi verið tekið nógu föstum tökum á því þegar kæmi að því hvernig óskað sé eftir upplýsingum frá farþegum annarra landa.
„Við erum að taka á þessu í nýju frumvarpi. Við stefnum líka á að vera með greiningarmiðstöð sem verður sett á fót á landamærunum og að það verði brottfararmiðstöð sem verði líka sett á fót.
Það er ýmislegt í farvatninu sem þessi ríkisstjórn er með til þess að styrkja landamærin,“ segir Kristrún.