Ráðuneytið hjólar í frumvarpið

Alþingi | 3. júní 2025

Ráðuneytið hjólar í frumvarpið

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa bæði verulegar áhyggjur af frumvarpi Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem mælir fyrir um að tengja skuli greiðslur úr almannatryggingakerfinu við launavísitölu.

Ráðuneytið hjólar í frumvarpið

Alþingi | 3. júní 2025

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, er flutningsmaður frumvarpsins.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, er flutningsmaður frumvarpsins. mbl.is/Ólafur Árdal

Ingi­björg Isak­sen, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Njáll Trausti Friðberts­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, hafa bæði veru­leg­ar áhyggj­ur af frum­varpi Ingu Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra, sem mæl­ir fyr­ir um að tengja skuli greiðslur úr al­manna­trygg­inga­kerf­inu við launa­vísi­tölu.

Fjár­mála- og efna­hags­ráðuneytið hef­ur sent vel­ferðar­nefnd Alþing­is minn­is­blað þar sem frum­varpið er harðlega gagn­rýnt. Í minn­is­blaðinu er bent á að frum­varpið geti haft ófyr­ir­sjá­an­leg áhrif á rík­is­sjóð. Bæði sitja þau Ingi­björg og Njáll í vel­ferðar­nefnd þings­ins.

Ingi­björg seg­ir þetta enn eitt dæmið um að rík­is­stjórn­in leggi fram mál án þess að hafa ráðist í full­nægj­andi grein­ing­ar­vinnu. Hún tel­ur ólík­legt að málið farið óbreytt í gegn­um þingið.

Njáll seg­ir að ráðuneytið taki í minn­is­blaðinu und­ir þau sjón­ar­mið sem hann hafi talað um inn­an nefnd­ar­inn­ar. Hann tel­ur skyn­sam­legt að fresta af­greiðslu máls­ins. 

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

mbl.is