Sigurður Ingi: „Já, við skulum ekki nefna þann mann“

Alþingi | 3. júní 2025

Sigurður Ingi: „Já, við skulum ekki nefna þann mann“

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, gerði stöðu efnahagsmála og baráttuna við verðbólguna að umtalsefni á Alþingi í dag þar sem hann gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að draga úr verðmætasköpun og þrótti sveitarfélaga með aðgerðum sínum.

Sigurður Ingi: „Já, við skulum ekki nefna þann mann“

Alþingi | 3. júní 2025

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gerði stöðu efna­hags­mála og bar­átt­una við verðbólg­una að um­tals­efni á Alþingi í dag þar sem hann gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyr­ir að draga úr verðmæta­sköp­un og þrótti sveit­ar­fé­laga með aðgerðum sín­um.

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gerði stöðu efna­hags­mála og bar­átt­una við verðbólg­una að um­tals­efni á Alþingi í dag þar sem hann gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyr­ir að draga úr verðmæta­sköp­un og þrótti sveit­ar­fé­laga með aðgerðum sín­um.

„Rík­is­stjórn Kristrún­ar Frosta­dótt­ur lofaði því að slá niður verðbólg­una með sleggju og djöf­ul­skap og lát­um. Þau eru ekki að því. Þvert á móti boðar hér rík­is­stjórn­in skatta og breyt­ing­ar sem hafa um­tals­verð áhrif á sveit­ar­fé­lög­in sem eru að skila þess­um góðu árs­reikn­ing­um, sem talað var um að allt væri að fara til – já, við skul­um ekki nefna þann mann. Rík­is­stjórn­in með öðrum orðum er að draga úr verðmæta­sköp­un og draga úr þrótti sam­fé­lag­anna, sveit­ar­fé­lag­anna hring­inn í kring­um landið,“ sagði Sig­urður Ingi und­ir liðnum störf þings­ins í dag.

Raun­vext­ir enn mjög háir

Hann sagði að þrátt fyr­ir mörg já­kvæð merki, s.s. hvað varðar lífs­kjör al­menn­ings, auk­inn kaup­mátt og já­kvæða af­komu sveit­ar­fé­lag­anna und­an­farið, þá væru raun­vext­ir enn mjög háir.

„Það var mikið aðhald í rík­is­rekstri, þrátt fyr­ir mót­bár­ur nú­ver­andi meiri hluta á þeim tíma, sem skilaði sam­drætti á síðasta ári, jafn­vægi í mörgu, þar á meðal jafn­vel á hús­næðismarkaði þótt við vilj­um sann­ar­lega byggja meira. Hag­vexti var spáð 2,5% í fjár­lög­un­um sem fóru hér í gegn og nú­ver­andi rík­is­stjórn styðst enn við. Nú er búið að end­ur­meta þá hagspá, hún er kom­in niður í 1,6% og stefn­ir jafn­vel í 1% yfir yf­ir­stand­andi ár.

Þetta ger­ist eft­ir 100 daga af­mæl­is­höld nú­ver­andi rík­is­stjórn­ar. Það gekk nefni­lega býsna vel lengi vel en nú eru verðbólgu­vænt­ing­ar því miður ekki að fara niður,“ sagði Sig­urður Ingi.

Margt að fara á verri veg

Hann bætti við að þrátt fyr­ir að Íslands­banka­sal­an hefði gengið ljóm­andi vel þá væri margt að fara á verri veg.

mbl.is