Bandaríski leikarinn Jonathan Joss var skotinn til bana í fyrradag þegar hann og eiginmaður hans heimsóttu gamla heimili sitt í San Antonio í Texas, sem brann í janúar síðastliðnum.

Joss var 59 ára gamall og hvað þekktastur fyrir að talsetja John Redcorn í teiknimyndaþáttunum King of the Hill. Hann var þá einnig þekktur fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Parks and Recreation en þar lék hann Chief Ken Hotate.
Eiginmaður Joss, Tristan Kern de Gonzales, segir morðið hafa verið hatursglæp vegna þess að hann var samkynhneigður.
Lögreglan í Texas segist ekki hafa neinar sannanir fyrir því.
„Þegar við komum aftur á gamla heimilið okkar til að skoða póstinn sáum við höfuðkúpu hundsins okkar og beisli hans í augsýn. Við byrjuðum að öskra og gráta vegna þess sem við sáum. Þá kemur maður til okkar sem byrjar að öskra ofbeldisfull og hómófóbísk niðrandi orð að okkur, lyfti svo byssu og skaut.“ segir Gonzales í Facebook-færslu sinni.
Sigfredo Alvarez Ceja hefur verið handtekinn vegna gruns um morðið.