Þingmaður segir launahækkunina til skammar

Alþingi | 3. júní 2025

Þingmaður segir launahækkunina til skammar

Jónína Björk Óskarsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segir launahækkun þingmanna og ráðherra sem taka mun gildi um næstu mánaðamót vera til háborinnar skammar. 

Þingmaður segir launahækkunina til skammar

Alþingi | 3. júní 2025

Jónína Björk Óskarsdóttir segir launahækkunina til háborinnar skammar.
Jónína Björk Óskarsdóttir segir launahækkunina til háborinnar skammar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jón­ína Björk Óskars­dótt­ir, þingmaður Flokks fólks­ins, seg­ir launa­hækk­un þing­manna og ráðherra sem taka mun gildi um næstu mánaðamót vera til há­bor­inn­ar skamm­ar. 

Jón­ína Björk Óskars­dótt­ir, þingmaður Flokks fólks­ins, seg­ir launa­hækk­un þing­manna og ráðherra sem taka mun gildi um næstu mánaðamót vera til há­bor­inn­ar skamm­ar. 

Laun þing­manna og ráðherra, sem og fleiri ráðamanna, hækka um 5,6% um næstu mánaðamót.

Laun al­menns launa­fólks hækkuðu til sam­an­b­urðar um 3,5% eft­ir gerð sein­ustu kjara­samn­inga. Laun æðstu ráðamanna eru end­ur­skoðuð á ári hverju og eru miðuð við meðaltal launa­hækk­ana al­mennra rík­is­starfs­manna. 

„Þetta er til há­bor­inn­ar skamm­ar að mínu mati og ég hef alltaf sagt það. Þetta er alltaf miðað við vísi­tölu og fer eft­ir ákveðnum pró­sent­um og þetta er bara orðin geðveiki. Launamun­ur­inn er bara að aukast enda­laust,“ seg­ir Jón­ína Björk í sam­tali við mbl.is.

Sagði hækk­an­irn­ar blauta tusku

Þing­flokk­ur Flokks fólks­ins lagði fram þings­álykt­un­ar­til­lögu í kjöl­far sam­bæri­legra launa­hækk­ana árið 2023 þar sem lagt var til að launa­hækk­an­ir til æðstu ráðamanna yrði frestað.

Inga Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra og formaður Flokks fólks­ins, sagði í sam­tali við Rík­is­út­varpið árið 2023 að launa­hækk­an­irn­ar væru blaut tuska í and­litið á þjóðinni.

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra, lagði fram frum­varp á sein­asta ári þar sem launa­hækk­an­ir þess árs fyr­ir æðstu ráðamenn voru tak­markaðar við 66 þúsund krón­ur. Hækk­un þing­fara­kaups miðað við launa­hækk­un­ina sem tek­ur gildi um mánaðamót­in mun nema 85 þúsund krón­um. 

mbl.is