Víðir Reynisson sakaður um trúnaðarbrot

Flóttafólk á Íslandi | 3. júní 2025

Víðir Reynisson sakaður um trúnaðarbrot

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, telur að Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar, hafi brotið trúnað gagnvart allsherjar- og menntamálanefnd, sem hann gegnir formennsku í.

Víðir Reynisson sakaður um trúnaðarbrot

Flóttafólk á Íslandi | 3. júní 2025

„Þetta er ákvörðun sem ég tók og þótti skyn­sam­leg­ust á …
„Þetta er ákvörðun sem ég tók og þótti skyn­sam­leg­ust á þess­um tíma­punkti og finnst enn,“ sagði Víðir í samtali við mbl.is fyrr í dag um ákvörðun sína. mbl.is/María

Sig­ríður Á. And­er­sen, þingmaður Miðflokks­ins, tel­ur að Víðir Reyn­is­son, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hafi brotið trúnað gagn­vart alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd, sem hann gegn­ir for­mennsku í.

Sig­ríður Á. And­er­sen, þingmaður Miðflokks­ins, tel­ur að Víðir Reyn­is­son, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hafi brotið trúnað gagn­vart alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd, sem hann gegn­ir for­mennsku í.

Þetta kom fram í ræðu Sig­ríðar á Alþingi fyrr í dag und­ir liðnum störf þings­ins. 

Víðir greip inn í mál Oscars Boco­negra sem vísa átti úr landi með því að hafa sam­band við Útlend­inga­stofn­un og full­yrða við stofn­un­ina að yf­ir­gnæf­andi lík­ur væru á því að Oscar myndi fá veitt­an ís­lensk­an rík­is­borg­ara­rétt frá Alþingi. Útlend­inga­stofn­un hætti því við brott­vís­un­ina.

Undraðist um­mæli Víðis í fjöl­miðlum

Sér­stök þriggja manna und­ir­nefnd starfar und­ir alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd sem af­greiðir um­sókn­ir sem ber­ast Alþingi um rík­is­borg­ara­rétt.

„Það vakti þess vegna undr­un mína að lesa í fjöl­miðlum bæði í gær og í dag um­mæli hátt­virts for­manns alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar, Víðis Reyn­is­son­ar, um málsmeðferðina og lík­lega af­greiðslu þess­ara mála í nefndri und­ir­nefnd,“ sagði Sig­ríður. 

Hún rakti svo mála­vexti eins og Víðir hef­ur gefið upp í fjöl­miðlum, að hann hafi sett sig í sam­band við Útlend­inga­stofn­un með það að mark­miði að koma í veg fyr­ir brott­vís­un Oscars.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins.
Sig­ríður Á. And­er­sen, þingmaður Miðflokks­ins. mbl.is/​Eyþór

„Ég geri veru­lega at­huga­semd“

„Ég geri veru­lega at­huga­semd við þessa fram­göngu for­manns hátt­virt­ar alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar. Ég spyr auðvitað hvaðan hon­um hafi komið umboð til þess að tjá sig með þess­um hætti og hafa af­skipti af lög­mæt­um kæru­ferl­um og lög­mætri stjórn­sýslu, ákveðnum stjórn­sýslu­ferl­um með þess­um hætti,“ sagði Sig­ríður og bætti við:

„Að mínu mati, virðuleg­ur for­seti, hef­ur hátt­virt­ur formaður alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar, Víðir Reyn­is­son, brotið trúnað við hátt­virta alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd, ekki bara und­ir­nefnd þá sem ég nefndi hér í upp­hafi held­ur alla nefnd­ina. Ég tel ekki fara vel á því að svona fram­ganga verði lát­in átölu­laus hér á þing­inu.“

mbl.is