Bandaríski tónlistarmaðurinn Iggy Pop tryllti lýðinn á rafmögnuðum tónleikum í Manchester-borg á laugardagskvöldið, að sjálfsögðu ber að ofan.

Pop, gjarnan titlaður guðfaðir pönktónlistarinnar, er núna, að öllu óbreyttu, á síðasta tónleikaferðalagi sínu og hyggst leggja míkrafóninn á hilluna að því loknu, en tónlistarmaðurinn á að baki langan og farsælan feril sem spannar hátt í 60 ár.
Hinn 78 ára gamli Pop, sem heitir réttu nafni James Newell Osterberg Jr., hefur aldrei látið aldurinn stoppa sig og sýndi og sannaði að aldur er bara tala er hann hoppaði um sviðið og hljómaði alveg eins og í gamla daga þegar hann flutti nokkur af vinsælustu lögum sínum, þar á meðal The Passenger, við mikinn fögnuð viðstaddra.
Tónlistarmaðurinn er þó með góðan húmor fyrir sjálfum sér og er meðvitaður um hækkandi aldur, þrátt fyrir að vera ungur í anda, og lauk tónleikunum á ansi eftirminnilegan máta.
Pop lagðist ofan í líkkistu og lét sviðsmann ýta henni út af sviðinu við dynjandi lófaklapp ánægðra aðdáenda, en slíkt gera aðeins alvöru rokkstjörnur.