Einhugur er í ríkisstjórninni um að tengja bætur almannatryggingakerfisins við launavísitölu, segir Inga Sæland félagsmálaráðherra, þrátt fyrir að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafi gert alvarlegar athugasemdir við frumvarp Ingu í minnisblaði sem ráðuneyti hans sendi velferðarnefnd sem hefur frumvarpið í meðförum sínum.

Í minnisblaðinu kemur fram, þvert á orð Ingu um meinta kjaragliðnun, að fjárhæð örorkubóta í ár til einhleyps einstaklings sé 18% hærri en örorkubætur framreiknaðar frá árinu 1997 miðað við þróun launavísitölu og 118% hærri ef miðað sé við þróun vísitölu neysluverðs.
Þá er bent á að launavísitala feli í sér ýmsar aðrar breytur en eiginlegar launahækkanir sem skili sér ekki í vasa launþega, svo sem hærra reiknað tímakaup vegna styttingar vinnuvikunnar. Þá feli hún í sér launaskrið t.d. vegna innbyggðra aldurshækkana eða framleiðni- og hagvaxtaraukningar sem kunni að verða á almennum vinnumarkaði en eigi ekki við að reikna inn í breytingar á bótum almannatrygginga.
Loks er gagnrýnt að fyrirkomulagið sé í andstöðu við markmið fjármálaáætlunar um sjálfbæran ríkisrekstur.
Inga gefur lítið fyrir gagnrýni fjármálaráðherra og hyggst ekki hvika frá fyrirætlunum sínum.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.