Er Reeves búinn að festa ráð sitt?

Ást í Hollywood | 4. júní 2025

Er Reeves búinn að festa ráð sitt?

Kanadíski leikarinn Keanu Reeves og kærasta hans, listakonan Alexandra Grant, vöktu mikla athygli er þau gengu hönd í hönd niður rauða dregilinn á frumsýningu spennumyndarinnar Ballerina í Los Angeles á þriðjudagskvöldið.

Er Reeves búinn að festa ráð sitt?

Ást í Hollywood | 4. júní 2025

Alexandra Grant og Keanu Reeves.
Alexandra Grant og Keanu Reeves. Ljósmynd/AFP

Kanadíski leik­ar­inn Ke­anu Reeves og kær­asta hans, lista­kon­an Al­ex­andra Grant, vöktu mikla at­hygli er þau gengu hönd í hönd niður rauða dreg­il­inn á frum­sýn­ingu spennu­mynd­ar­inn­ar Baller­ina í Los Ang­eles á þriðju­dags­kvöldið.

Kanadíski leik­ar­inn Ke­anu Reeves og kær­asta hans, lista­kon­an Al­ex­andra Grant, vöktu mikla at­hygli er þau gengu hönd í hönd niður rauða dreg­il­inn á frum­sýn­ingu spennu­mynd­ar­inn­ar Baller­ina í Los Ang­eles á þriðju­dags­kvöldið.

Ástin skein af Reeves og Grant er þau stilltu sér upp fyr­ir ljós­mynd­ara og veifuðu til aðdá­enda, enda tóku þau vart aug­un hvort af öðru allt kvöldið.

Parið, sem er afar glæsi­legt, vek­ur at­hygli hvar sem það stíg­ur niður fæti en það sem vakti þó sér­staka at­hygli gesta og gang­anda á frum­sýn­ing­unni var stærðar­inn­ar dem­ants­hring­ur á baug­fingri Grant sem kynti veru­lega und­ir orðróm þess efn­is að parið væri búið að láta pússa sig sam­an.

Reeves, 60 ára, og Grant, 52 ára, eru sögð hafa byrjað að stinga nefj­um sam­an þegar þau unnu að gerð bók­ar­inn­ar Ode to Happ­iness árið 2011 en þau héldu sam­band­inu leyndu í dágóðan tíma, eða heil átta ár.

Parið op­in­beraði sam­band sitt árið 2019 þegar Grant fylgdi Reeves niður rauða dreg­il­inn á viðburði í Los Ang­eles.

Reeves og Grant hafa verið mjög fá­mál um sam­bandið í gegn­um tíðina og reynt eft­ir fremsta megni að halda sig frá sviðsljós­inu. Það þykir því ansi ólík­legt að þau muni tjá sig um stöðu sam­bands­ins, það er hvort þau séu trú­lofuð, gift eða kær­ustupar.

Ástin skein af parinu á frumsýningu kvikmyndarinnar Ballerina.
Ástin skein af par­inu á frum­sýn­ingu kvik­mynd­ar­inn­ar Baller­ina. AFP/​Matt Win­kel­meyer
mbl.is