Launahækkun Jóns Gnarr út um þúfur

Alþingi | 4. júní 2025

Launahækkun Jóns Gnarr út um þúfur

Nokkuð undarlegt atvik átti sér stað á Alþingi í dag þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, setti á dagskrá sitt eigið frumvarp um breytingu á þingskapalögum en tók það svo af dagskrá eftir gagnrýni og ábendingar frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar.

Launahækkun Jóns Gnarr út um þúfur

Alþingi | 4. júní 2025

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og formaður framtíðarnefndar, fær ekki 10% …
Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og formaður framtíðarnefndar, fær ekki 10% álag enn sem komið er. mbl.is/Karítas

Nokkuð und­ar­legt at­vik átti sér stað á Alþingi í dag þegar Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­seti Alþing­is, setti á dag­skrá sitt eigið frum­varp um breyt­ingu á þing­skap­a­lög­um en tók það svo af dag­skrá eft­ir gagn­rýni og ábend­ing­ar frá þing­mönn­um stjórn­ar­and­stöðunn­ar.

Nokkuð und­ar­legt at­vik átti sér stað á Alþingi í dag þegar Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­seti Alþing­is, setti á dag­skrá sitt eigið frum­varp um breyt­ingu á þing­skap­a­lög­um en tók það svo af dag­skrá eft­ir gagn­rýni og ábend­ing­ar frá þing­mönn­um stjórn­ar­and­stöðunn­ar.

Frum­varpið sneri að því að lengja líf framtíðar­nefnd­ar sem á að vera lögð niður 31. des­em­ber 2025. Sam­kvæmt frum­varpi Þór­unn­ar þá myndi nefnd­in fá að lifa út allt kjör­tíma­bilið og í þokka­bót á að hækka laun for­manns nefnd­ar­inn­ar, Jóns Gn­arr þing­manns Viðreisn­ar, með því að greiða hon­um 10% álag ofan á þing­far­ar­kaup á meðan nefnd­in er starf­andi.

Slíkt álag hef­ur ekki verið greitt for­mönn­um nefnd­ar­inn­ar áður en laun Jóns hækka um 153 þúsund krón­ur á mánuði ef frum­varpið verður samþykkt. Ekki er ljóst hvort og hvenær frum­varpið fer á dag­skrá aft­ur. 

„Inn­an­hús­bingó stjórn­ar­meiri­hlut­ans“

Framtíðar­nefnd Alþing­is var komið á fót árið 2021 og var nefnd­inni til að byrja með ætlað að starfa út kjör­tíma­bilið sem hófst 2021. Nefnd­in er með óljóst hlut­verk, ólíkt fasta­nefnd­um þings­ins, og er það nefnd­ar­inn­ar sjálfr­ar að hafa frum­kvæði að þeim mál­um sem hún tek­ur til um­fjöll­un­ar og vinnslu.

Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, seg­ir það óvenju­legt að lagt sé til frum­varp um breyt­ing­ar á þingsköp­um án þess að þær breyt­ing­ar séu fyrst kynnt­ar öll­um þing­flokk­um og reynt að ná sátt um þær. Það hafi hins veg­ar ekki verið gert í þessu máli.

„Hér er ekki hægt að segja um brýnt mál sé að ræða, alls ekki. Ég spyr mig af hverju þetta mál er yfir höfuð á dag­skrá og ég get ekki bet­ur séð en að lík­leg­ast er um ein­hvers kon­ar inn­an­hús­bingó stjórn­ar­meiri­hlut­ans um að ræða,“ sagði Hild­ur á Alþingi í dag.

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins. mbl.is/​Eyþór

Hlýddi á ábend­ing­ar og tók málið af dag­skrá

Hild­ur hvatti Þór­unni til að draga frum­varpið til baka, þar sem ekki var búið að reyna ná sátt­um við þing­flokka um breyt­ing­ar á þingsköp­um. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokks­ins, tók und­ir sjón­ar­mið Hild­ar, rétt eins og Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, og Stefán Vagn Stef­áns­son, þingmaður Fram­sókn­ar.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, tók einnig til máls og sagði umræðu vanta um hver til­gang­ur nefnd­ar­inn­ar sé.

Þór­unn fyr­ir sitt leyti virðist hafa séð að sér og tók sitt eigið frum­varp af dag­skrá.

„For­seti vill taka fram að í til­efni af þess­ari umræðu um at­kvæðagreiðsluna – sem er reynd­ar af­brigði vegna þess að þetta mál kom fram eft­ir 1. apríl – að for­seti hef­ur hlýtt á ábend­ing­ar þeirra þing­manna sem hér hafa talað og tek­ur hér með 6. dag­skrár­málið af dag­skrá þessa þing­fund­ar,“ sagði Þór­unn.

Með ólík­ind­um að enn sé verið að leggja fram mál

Í sam­tali við mbl.is seg­ir Hild­ur að for­set­ar þings­ins og þing­skap­ar­nefnd­ir hafi alltaf lagt sig alla fram um að ná sem víðtæk­astri sam­stöðu.

Hún seg­ir það vera með ólík­ind­um að rík­is­stjórn­in sé enn að koma með mál inn í þingið, meira en tveim­ur mánuðum eft­ir að frest­ur sem þingsköp gefa til að vinna mál er liðinn.

„Það er í raun með ólík­ind­um að stjórn­ar­meiri­hlut­inn skuli enn vera að setja á dag­skrá þings­ins ný mál í fyrstu umræðu þegar staðan á þing­inu, með mörg­um erfiðum mál­um, er eins þung og raun ber vitni. Við að sjálf­sögðu ger­um at­huga­semd við það. Fyr­ir mitt leyti verður ein­fald­lega að bera meiri virðingu þeim regl­um sem við höf­um sett okk­ur til að um­gang­ast laga­setn­ingu í okk­ar ágæta landi,“ seg­ir Hild­ur.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis.
Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­seti Alþing­is. mbl.is/​Karítas
mbl.is