Meghan Markle fagnar afmæli dóttur sinnar

Kóngafólk | 4. júní 2025

Meghan Markle fagnar afmæli dóttur sinnar

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, birti sætar myndir af dóttur sinni, Lilibet Díönu, á Instagram-síðu sinni fyrr í dag, en tilefnið er fjögurra ára afmæli stúlkunnar.  

Meghan Markle fagnar afmæli dóttur sinnar

Kóngafólk | 4. júní 2025

Meghan Markle deildi myndum af dóttur sinni á Instagram í …
Meghan Markle deildi myndum af dóttur sinni á Instagram í tilefni afmælis. Ljósmynd/AFP

Meg­h­an Markle, her­togaynj­an af Sus­sex, birti sæt­ar mynd­ir af dótt­ur sinni, Li­li­bet Díönu, á In­sta­gram-síðu sinni fyrr í dag, en til­efnið er fjög­urra ára af­mæli stúlk­unn­ar.  

Meg­h­an Markle, her­togaynj­an af Sus­sex, birti sæt­ar mynd­ir af dótt­ur sinni, Li­li­bet Díönu, á In­sta­gram-síðu sinni fyrr í dag, en til­efnið er fjög­urra ára af­mæli stúlk­unn­ar.  

Markle deildi tveim­ur svart­hvít­um mynd­um af þeim mæðgum með fylgj­end­um sín­um sem sýna hvernig stúlk­an hef­ur vaxið og dafnað í fangi móður sinn­ar.

„Til ham­ingju með af­mælið, elsku fal­lega stelp­an okk­ar! Fyr­ir fjór­um árum kom hún inn í líf okk­ar - og hver dag­ur hef­ur verið bjart­ari og betri vegna þess. Hjart­ans þakk­ir til allra sem hafa sent kveðjur á þess­um sér­staka degi,“ skrifaði Markle við færsl­una.

Markle birt­ir ekki mikið af mynd­um af börn­um henn­ar og Harry Bretaprins, sér­stak­lega mynd­ir sem sýna and­lit þeirra, en Harry er sagður ósátt­ur við slík­ar mynd­birt­ing­ar.

Markle og Harry Bretaprins gengu í hjóna­band við hátíðlega at­höfn þann 19. maí 2018. Tæpu ári síðar tóku þau á móti frumb­urði sín­um, syn­in­um Archie Harri­son. Li­li­bet Dí­ana fædd­ist tveim­ur árum seinna.



mbl.is