„Öruggt að þau eru metin á mismunandi vegu“

Skólakerfið í vanda | 4. júní 2025

„Öruggt að þau eru metin á mismunandi vegu“

Mikilvægt er að koma á samræmdum prófum í grunnskólum þó að ekki ætti að líta til niðurstöðu prófanna við innritun nemenda í framhaldsskóla. Prófin gætu frekar nýst stjórnendum grunnskóla til að bera saman árangur nemenda milli ára og annarra skóla á landinu. 

„Öruggt að þau eru metin á mismunandi vegu“

Skólakerfið í vanda | 4. júní 2025

Ómar segir augljóst að nemendur séu metnir inn í framhaldsskóla …
Ómar segir augljóst að nemendur séu metnir inn í framhaldsskóla á ólíkum forsendum. mbl.is/Hari

Mik­il­vægt er að koma á sam­ræmd­um próf­um í grunn­skól­um þó að ekki ætti að líta til niður­stöðu próf­anna við inn­rit­un nem­enda í fram­halds­skóla. Próf­in gætu frek­ar nýst stjórn­end­um grunn­skóla til að bera sam­an ár­ang­ur nem­enda milli ára og annarra skóla á land­inu. 

Mik­il­vægt er að koma á sam­ræmd­um próf­um í grunn­skól­um þó að ekki ætti að líta til niður­stöðu próf­anna við inn­rit­un nem­enda í fram­halds­skóla. Próf­in gætu frek­ar nýst stjórn­end­um grunn­skóla til að bera sam­an ár­ang­ur nem­enda milli ára og annarra skóla á land­inu. 

Þetta seg­ir Ómar Örn Magnús­son, skóla­stjóri í Haga­skóla, í sam­tali við mbl.is. Hann bind­ur mikl­ar von­ir við nýj­an mats­fer­il sem stefnt er að leggja fyr­ir nem­end­ur í haust en hann á að leysa gömlu sam­ræmdu próf­in af hólmi. Í vor var mats­fer­ill­inn prufaður á 7.000 grunn­skóla­nem­end­um í 26 skól­um.

„Í fyrsta lagi myndi ég fagna ein­hverju sam­ræmdu náms­mati, bara til að við í skól­an­um fáum betri upp­lýs­ing­ar frá ári til árs um stöðu nem­enda og get­um þá miðað þær upp­lýs­ing­ar við eins aðra nem­end­ur á land­inu eða höfuðborg­ar­svæðinu,“ seg­ir Ómar. 

Í bága við lög og góða stjórn­sýslu­hætti

Greint var frá lög­fræðiáliti í Morg­un­blaðinu sem lög­manns­stof­an Jur­is vann fyr­ir Viðskiptaráð Íslands. Í álit­inu kom fram að ef ekki er stuðst við sam­ræmd próf við inn­rit­un í fram­halds­skóla eða annað sam­bæri­legt próf séu lík­ur á því að nem­end­ur sem sækja um skóla­vist í fram­halds­skól­um standi ekki jafn­ir að vígi við inn­rit­un. Það sé í and­stöðu við lög og góða stjórn­sýslu­hætti. 

Sam­ræmd könn­un­ar­próf hafa ekki verið lögð fyr­ir í grunn­skól­um síðan árið 2022 en próf­in hafa ekki verið nýtt til viðmiðunar í inn­rit­un í fram­halds­skóla í lengri tíma. 

Í álit­inu kom jafn­framt fram að ósam­ræmi í loka­ein­kunn­um úr grunn­skól­um hafi það í för með sér að nem­end­ur fái í reynd ójafna meðferð við inn­rit­un í fram­halds­skóla en lengi hef­ur verið talað um svo­kallaða ein­kunna­verðbólgu. 

Nem­end­ur metn­ir á mis­mun­andi for­send­um

Ómar seg­ir aug­ljóst að nem­end­ur séu metn­ir inn í fram­halds­skóla á mis­mun­andi for­send­um og að lokamat nem­enda úr grunn­skól­um lands­ins sé ekki það sama.

„All­ir grunn­skól­ar vinna sam­kvæmt aðal­nám­skrá og það eru ákveðin matsviðmið þar um lok tí­unda bekkj­ar. En ég meina við þurf­um ekki annað en að lesa þau til þess að sjá að það er ör­uggt að þau eru met­in á mis­mun­andi vegu milli skóla,“ seg­ir Ómar og bæt­ir við:

„Ég kalla mjög eft­ir því frá Miðstöð mennt­un­ar og skólaþjón­ustu að það yrði gef­in út ein­hvers kon­ar dreif­ing ein­kunna við lok grunn­skóla,“ seg­ir Ómar og út­skýr­ir að með slíku fyr­ir­komu­lagi væri hægt að gera sam­an­b­urð á milli skóla hversu stórt hlut­fall út­skrif­ast með A, B+ og svo fram­veg­is.

Seg­ir hann að nú hafi stjórn­end­ur skól­anna ekk­ert í hönd­un­um varðandi ár­ang­ur nem­enda milli ára eða annarra skóla annað en eig­in til­finn­ingu.

Haga­skóli ger­ir hins veg­ar inn­an­húss­próf­an­ir á nem­end­um til að bera sam­an náms­ár­ang­ur milli ár­ganga og nem­enda en Ómar seg­ir æski­legt að hægt væri að sjá hvernig nem­end­ur standa í sam­an­b­urði við nem­end­ur í öðrum skól­um.

mbl.is