Pútín mun hefna sín

Úkraína | 4. júní 2025

Pútín mun hefna sín

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir forseta Rússlands, Vladimír Pútín, mjög staðfastan í að hefna fyrir óvænta árás Úkraínumanna á rússneska flugvelli um helgina. Þá segir hann að friður á milli Rússlands og Úkraínu sé ekki í sjónmáli.

Pútín mun hefna sín

Úkraína | 4. júní 2025

Trump og Pútín ræddu saman í síma fyrr í dag.
Trump og Pútín ræddu saman í síma fyrr í dag. AFP/Drew Angerer/Gavriil Grigorov

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ir for­seta Rúss­lands, Vla­dimír Pútín, mjög staðfast­an í að hefna fyr­ir óvænta árás Úkraínu­manna á rúss­neska flug­velli um helg­ina. Þá seg­ir hann að friður á milli Rúss­lands og Úkraínu sé ekki í sjón­máli.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ir for­seta Rúss­lands, Vla­dimír Pútín, mjög staðfast­an í að hefna fyr­ir óvænta árás Úkraínu­manna á rúss­neska flug­velli um helg­ina. Þá seg­ir hann að friður á milli Rúss­lands og Úkraínu sé ekki í sjón­máli.

Trump átti um klukku­stund­ar langt sím­tal við Pútín fyrr í dag en í færsl­um á sam­fé­lags­miðlum hef­ur hann gefið út að aðalum­ræðuefnið hafi verið dróna­árás­ir Úkraínu­manna á rúss­neska flug­velli á sunnu­dag þar sem nokkr­ar orr­ustuþotur að verðmæti millj­arða doll­ara, sem jafn­gild­ir hundruðum millj­arða ís­lenskra króna, voru eyðilagðar.

Þriðja sím­talið

„Þetta var gott sam­tal, en ekki sam­tal sem mun leiða til taf­ar­lauss friðar,“ sagði Trump í færslu á sam­fé­lags­miðlum. „Pútín for­seti sagði, og það mjög ákveðið, að hann þyrfti að bregðast við árás­inni á flug­vell­ina.“

Um var að ræða þriðja sím­tal Pútíns og Trumps frá því Banda­ríkja­for­set­inn sneri aft­ur til valda í upp­hafi árs en síðan hef­ur Trump reynt að fá Pútín að samn­inga­borðinu með Úkraínu. Pútín hef­ur ekki verið reiðubú­inn til þess.

Auk stríðsátak­anna á milli Úkraínu og Rúss­lands ræddu þjóðarleiðtog­arn­ir kjarn­orku­áætlun ír­anskra stjórn­valda en yf­ir­völd í Rússlandi hafa gefið út að sam­talið hafi verið „já­kvætt“ og „ár­ang­urs­ríkt“.

mbl.is