Rússar segja Úkraínumenn hafa hafnað tilboði um skammtímavopnahlé til að leyfa báðum þjóðum að fjarlægja lík fallinna hermanna af vígvellinum.

„Ég tel þetta vera gróf mistök af hálfu stjórnvalda í Kænugarði,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.
Samninganefndir Úkraínu og Rússlands funduðu síðast á mánudag í von um að semja um frið í Úkraínu. Samninganefndirnar náðu saman um fangaskipti en ekki tókst að ná samkomulagi til að binda enda á innrásarstríð Rússa í Úkraínu.
Samþykkt var að skiptast á öllum föngum undir 25 ára aldri auk þess sem allir veikir og særðir hermenn yrðu sendir til síns heima.
Eftir fundinn á mánudag sagðist samninganefnd Rússa hafa lagt til tveggja til þriggja daga hlé á ákveðnum svæðum nálægt víglínunni. Vildu þeir ekki gefa mikið upp um hvað annað fælist í tillögunni.